kde-isl  

Re: [kde-isl]: Linux kynning hjá Menntamálaráðuneytinu

Arnar Leósson
Sat, 04 Dec 2004 20:08:26 -0800

Hér er smá lista yfir forrit sem ég tel að mætti gjarna sýna. Þar sem ég 
reikna með að þau sem þið komið til að ræða við, séu fyrir það mesta óreyndir 
notendur sem koma til með að leggja mesta áherslu á að forritin séu einföld í 
notkun, og sjái vel út.


amaroK - Virkilega flottur spilari/skipuleggjari fyrir tónlist. 
http://amarok.kde.org/

KDar - Grafískt, öflugt afritunartól sem er einfalt í notkun. 
http://kdar.sourceforge.net/

K3b - Segir sig kannski sjálft. Án efa flottasti CD brennarinn sem þú færð 
fyrir Linux. http://www.k3b.org/

KGet - Niðurhalsstjóri í anda GetRight. Mjög þægilegt tól sem lítur einnig vel 
út. http://kget.sourceforge.net/
Íslensk skjámynd - http://www.is.kde.org/myndir/kget.png

Kppp - Fyrir þá sem nota módem til að tengjast netinu. 
http://ktown.kde.org/~kppp/
Íslensk skjámynd - http://www.is.kde.org/myndir/kppp.png

Skjáborðsálfinn - Virkilega flott tól fyrir byrjendur. 
http://www.is.kde.org/myndir/3.2/stor/14.png

Prentstjórinn - Álíka auðvelt að setja upp prentara og í Windows - 
http://printing.kde.org/overview/kprinter.php 
Íslensk skjámynd - http://www.is.kde.org/myndir/3.2/stor/16.png

Stjórnborðið - Sýnir nýjum notendum kannski hve auðvelt KDE getur verið í 
notkun. - http://www.is.kde.org/myndir/3.2/litil/13.png

Kuickshow - Taka haug af myndum og sýna í Kuickshow (eða láta Konqueror sýna 
þær í táknmyndasýn) - http://kuickshow.sourceforge.net/

Digikam eða annað forrit fyrir stafrænar myndavélar

CrossOver Office - Kannski setja upp Office XP með þessu tóli, bara til að 
sýna fram á möguleikann.  - http://www.codeweavers.com/site/products/

Eflaust haugur af öðrum forritum sem ég man ekki eftir akkurat núna...

Verst að amaroK og K3b eru ekki íslenskuð ennþá, sem minnir mig á, er ekki 
hægt að setja kdeextragear greinarnar í íslenska CVS hlutann? Eru mörg forrit 
þar sem er nauðsynlegt að þýða.

Einnig ekki gleyma að benda á þá staðreynd að það finnast varla vírusar fyrir 
Linux. Er Windows vandamál.

Annars:
Virkilega flott framtak hjá ykkur og ég vona að þetta ýti aðeins við þessu 
ágæta fólki.
Gangi ykkur vel.

Kveðja,
Arnar Leósson


Þann Föstudagur 03 desember 2004 16:16 skrifaðir þú:
> Sælir!
>
> Á http://bre.klaki.net/dagbok/faerslur/1102086722.shtml birti ég
> eftirfarandi texta rétt í þessu, datt í hug að senda ykkur þetta
> líka:
>
>   Í næstu viku fer ég ásamt nokkrum öðrum góðum Linux mönnum á fund
>   hjá Menntamálaráðuneytinu til að kynna Linux og þýðingar
>   opins/frjálss hugbúnaðar fyrir fólki þar.
>
>   Ég stefni að því að útbúa fyrir fundinn sérsniðinn Knoppix
>   geisladisk sem inniheldur íslenska þýðingu KDE og mögulega
>   einhver önnur forrit sem gætu þótt viðeigandi en vantar í
>   upprunalega Knoppix kerfið. Ég myndi brenna nokkur eintök af
>   diskinum og gefa fulltrúum ráðuneytanna eintök, svo þeir gætu
>   skoðað nánar og sýnt vinnufélögunum sínum. Eins og gefur að
>   skilja er þetta spennandi tækifæri fyrir Linux hjá hinu opinbera
>   og ég vil gefa sem bestu mynd af því hvað kerfið hefur upp á að
>   bjóða.
>
>   Ég er búinn að finna þægilegar leiðbeiningar um hvernig skuli
>   sérsníða Knoppix og búinn að sækja Knoppix 3.6 ... en fyrir utan
>   íslensku þýðingar KDE hef ég ekki hugmynd um hverju ég ætti að
>   bæta við (meðal annars af því að ég á alveg eftir að bútta
>   Knoppix sjálfur og skoða).
>
>   En semsagt, allar tillögur eru mjög vel þegnar. :-)


- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -