kde-isl  

[kde-isl]: Re: [vinix]: Linux kynning hjá Menntamálaráðuneytinu

Bjorn Arnar Hauksson
Sun, 05 Dec 2004 20:58:12 -0800

Líst vel á þetta. Spurning hvort þú færð endurgreiddan í leiðinni skattinn
sem þú greiddir til tónlistarmanna þegar þú keyptir brennsludiskana :-).

Annars dettur mér í hug að forrit sem Þorgerður og félagar gætu haft áhuga
á að skoða séu t.d.: Evolution póstforritið, Open Office, Gaim?, Gimp og
svo má segja þeim að reikniforrit séu flest ókeypis (og frjálst) á Linux,
s.s. Octave sem er hliðstætt Matblab. Og líklega flest allt sem t.d.
framhaldsskólar eru að borga fyrir í dag.

Þið vitið líklega að Franska ríkið var að hluta að skipta yfir í Mandrake,
sjá t.d.
http://searchenterpriselinux.techtarget.com/originalContent/0,289142,sid39_gci992096,00.html

Svo mætti líka sýna Menntamálaráðuneytinu stýrikerfi eins og Mandrake eða
RedHat á fartölvu.

Kveðjur,
Björn Arnar.


> Sælir!
>
> Á http://bre.klaki.net/dagbok/faerslur/1102086722.shtml birti ég
> eftirfarandi texta rétt í þessu, datt í hug að senda ykkur þetta
> líka:
>
>   Í næstu viku fer ég ásamt nokkrum öðrum góðum Linux mönnum á fund
>   hjá Menntamálaráðuneytinu til að kynna Linux og þýðingar
>   opins/frjálss hugbúnaðar fyrir fólki þar.
>
>   Ég stefni að því að útbúa fyrir fundinn sérsniðinn Knoppix
>   geisladisk sem inniheldur íslenska þýðingu KDE og mögulega
>   einhver önnur forrit sem gætu þótt viðeigandi en vantar í
>   upprunalega Knoppix kerfið. Ég myndi brenna nokkur eintök af
>   diskinum og gefa fulltrúum ráðuneytanna eintök, svo þeir gætu
>   skoðað nánar og sýnt vinnufélögunum sínum. Eins og gefur að
>   skilja er þetta spennandi tækifæri fyrir Linux hjá hinu opinbera
>   og ég vil gefa sem bestu mynd af því hvað kerfið hefur upp á að
>   bjóða.
>
>   Ég er búinn að finna þægilegar leiðbeiningar um hvernig skuli
>   sérsníða Knoppix og búinn að sækja Knoppix 3.6 ... en fyrir utan
>   íslensku þýðingar KDE hef ég ekki hugmynd um hverju ég ætti að
>   bæta við (meðal annars af því að ég á alveg eftir að bútta
>   Knoppix sjálfur og skoða).
>
>   En semsagt, allar tillögur eru mjög vel þegnar. :-)
>
> --
> Bjarni Rúnar Einarsson
>  [EMAIL PROTECTED]
>  http://bre.klaki.net/
>
> PGP: 02764305, B7A3AB89
>
>
>


- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -