kde-isl  

[kde-isl]: Atkvæðagreiðsla "Tooltips"

Arnar Leósson
Sat, 29 Jan 2005 04:35:45 -0800

Nú hefur könnunin staðið í góða stund og heil 18 stykki (17 fyrir utan mig) 
hafa tekið þátt. Ekki lélegt af bara 88 meðlimum.

Allavega, niðustaðan er að 'Bóluhjálp' fékk eitt atkvæði (5.56%), 'Flýtihjálp' 
fékk 4 atkvæði (22.22%), 'Smábending' heil 11 atkvæði (61.11%) og 
'Vísbending' 2 atkvæði (11.11%)

Þannig að það er óhætt að segja að smábending hafi rúllað yfir samkeppnina.

Ég set upp nýja könnun seinna í dag/morgun, og er það Proxy sem mig langar að 
fá álit manna á. 

Valkostirnir verða: proxy, milliþjónn og vefsel, ef ekki fleiri hugmyndir koma 
fram hér.

Staðstningin verður sem vanalega www.is.kde.org

Kveðja,
Arnar Leósson


- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -
  • [kde-isl]: Atkvæðagreiðsla "Tooltips" Arnar Leósson