Erlendur S Þorsteinsson
Sat, 12 Feb 2005 06:21:48 -0800
Jú, þetta var rætt ítarlega 1999 og 2000. Ég er sammála Arnari, mér finnst ekki að "rót" sé skiljanlegt og það er of háð nafni þessa tiltekna notanda á þessu tiltekna stýrikerfi og mér finnst "ofurpaur" hafa innbyggða neikvæða tilvísun.
Mín skoðun á þeim tíma (og hún hefur ekki breyst) var sú að
You become superuser by logging in as 'root',
to perform the duties of sysadmin.
væri best þýtt með
Þú gerist "æðri notandi" með því að skrá þig inn sem 'rót',
til að sinna störfum "kerfisstjóra".
Ath. í þessu samhengi að "root" er nafnið á þessum tiltekna notanda undir
UNIX á sama hátt og "[EMAIL PROTECTED]" er nafnið á þessum tiltekna
notanda undir Windows.
Vísa annars í fyrri umræðu:
http://www.molar.is/listar/kde-isl/1999-02/0225.shtml
(kdat, febrúar 1999)
http://www.molar.is/listar/kde-isl/1999-02/0188.shtml
(Ofurpaur ... léttur titill fyrir létta kerfisstjóra, febrúar 1999)
Það eru til fleiri þræðir, m.a. "Um ofurpaur og rætur" (febrúar 1999) og
"Ofurpaur, enn og aftur" (maí 2000). Google,
http://www.molar.is/listar/kde-isl/ og uppáhaldsvefsjáin ykkar ætti að koma
ykkur á sporið.
Kveðja, Erlendur.
Gudmundur Erlingsson @ 21:14 11.02.2005 +0000:
>
>Það er eins og mig minni að þetta hafi verið rætt
>nokkurn veginn í kaf þegar þýðingarstarfið var að
>byrja. Man ekki nákvæmlega hver rökin voru, en ég er
>allavega alveg sáttur við að tala um rót o.s.frv.
>Kerfisstjóri er líka of tengt gleraugnagláminum sem
>sér um tölvurnar, þ.e. lifandi manneskju en ekki
>abstraksjón í skráakerfi.
>
> --- Arnar Leósson <[EMAIL PROTECTED]> wrote:
>>
>> Á svipuðum nótum, er ekki ráðlagt að hætta að tala
>> um rót, rótarlykilorð,
>> rótarnotanda, rótaraðgang og þ.h. sem þýðingu á
>> (notandanum) root?
>>
>> Er kannski skiljanlegar fyrir venjulega notendur með
>> kerfisstjóri,
>> kerfisstjóraaðgangur, kerfisstjóralykilorð, ...
--
Erlendur S Þorsteinsson <[EMAIL PROTECTED]>
+354 ( ) 824-7404 / +354 ( ) 561-2340
- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -