kde-isl  

Re: [kde-isl]: Xslenskun Firefox (og Thunderbird).

Richard Allen
Tue, 10 May 2005 09:53:01 -0700

StefXn Freyr StefXnsson wrote:
> -----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
> Hash: SHA1
> 
> Góðan daginn.
> 
> Mig hefur lengi dreymt um að starta þýðingarverkefni á Firefox vafranum og 
> Thunderbird póstforritinu
> en hef haft mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig ég vil sjá það gert. Ég vildi 
> hafa þýðingarkerfi
> aðgengilegt á netinu og uppsetninguna þannig að þeir sem vildu þýða þyrftu 
> aðeins að skrá sig inn og
> gætu þá byrjað... ekkert vesen, engin óþarfa uppsetning hjá þýðendum og 
> ekkert CVS krukk!

Hérna...    ég hef verið að dútla mér í að þýða þetta líka.  Amk Firefox.
Það er hundleiðinlegt að þýða Mozilla vörurnar því þeir eru ekki að nota .po 
skrár eins og allir aðrir.
Eftir að hafa gefist upp á að möndla í .xpi skránum sjálfur fann ég 
tólasvítu sem kallast translate (http://translate.sourceforge.net/) sem ég 
sé ekki betur en að pootle sé einmitt hlutur af.

Kosturinn við translate er að maður notar moz2po á en_US.xpi og fær úr möppu 
fulla af .po skrám.   Þegar þær eru þýddar er po2moz notað og út kemur 
is_IS.xpi :)

Með .po skrám væri hægt að virkja fleiri í þessu vekefni en ella því það er 
eitthvað sem flestir hér kunna á.

Ég er reyndar ósammála þér með að CVS sé "krukk" því það tryggir þó að ekki 
verði til margar útgáfur af hverri skrá og allir sitji með sama efnið fyrir 
framan sig að vinna með og er ekkert erfitt í notkun eftir smá lærdóm.
Til eru m.a.s. ágætis myndræn tól (t.d. fyrir Windows) til að sýsla með CVS 
skráasöfn.

Síðan eru til mörg vefandlit á CVS.  Þú getur t.d. náð þér í skrár með 
WebCVS og svo bjuggum við til okkar kerfi fyrir KDE þar sem hægt er að sjá 
núverandi stöðu þýðinga og ná í allra nýjustu skrár til að vinna með.
Það finnur þú á http://i18n.ra.is

Hef ekki heldur skoðað pootle en ef það er sniðugt, skal ég henda því upp á 
íslenskri vél sérstaklega fyrir Firefox og Thunderbird þýðingar.

-- 
Rikki.         --  RHCE, RHCX, HP-UX Certified Administrator.
                --  Solaris 7 Certified Systems and Network Administrator.
Bell Labs Unix --  Reach out and grep someone.
Those who do not understand Unix are condemned to reinvent it, poorly.


- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -