Richard Allen
Tue, 10 May 2005 10:30:50 -0700
StefXn Freyr StefXnsson wrote: > -----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE----- > Hash: SHA1 > > Sæll Richard. > > Ég er nú reyndar ekki að hallmæla CVS sem slíku á neinn hátt, það er ágætt > til síns brúks. Aftur á > móti finnst mér það óþarfi að fólk sem hefur ekki mikla tækniþekkingu en > hefði áhuga á að þýða svona > forrit þurfi að ganga í gegnum leiðindi við að setja upp CVS hjá sér og læra > á það til þess eins að > þýða forrit. Fólkið sem ég hefði persónulega mikinn áhuga á að virkja í þessi > verkefni hefur oft > ekki þessa tækniþekkingu (t.d. íslenskufræðingar) en hefðu hugsanlega alveg > áhuga á að taka þátt í > þýðingunni. Þannig að það sem ég átti við með "krukk" var einfaldlega að > þurfa að nota CVS. > > Ég lít þannig á þetta að CVS sé og verði tólið sem nota á til að halda > "official" útgáfunni í > "synci" en ég sé ekkert athugavert við að bjóða upp á "útstöðvar" eins og > pootle.wordforge.org til > að einfalda þýðingarferlið fyrir þá sem ekki vilja vita af CVS. Það sem kemur > út úr > pootle.wordforge.org verður svo að sjálfsögðu á einn eða annan hátt tekið og > "committað" inn í CVS > þjóninn sem heldur utan um íslensku þýðinguna. > > Mér heyrist þú reyndar vita mun meira en ég um Pootle og translate.sf.net > þannig að það væri gott ef > við gætum einhvernveginn skoðað þetta í sameiningu og þá sérstaklega hver > hentugasta leiðin væri til > að koma þessu í einhverskonar "ferli" þannig að þýðingin á > pootle.wordforge.org sé reglulega sett > inn í "hið opinbera cvs fyrir firefox íslenskun" ef eitthvað slíkt er til > staðar (veistu hvort svo er?).
Ég hef gert nokkrar atrennur að því að þýða Firefox og það er ekki svo
einfalt nema bara sem þessar .po skrár.
Ertu ósáttur við það ferli að fara á vefsíðu, sjá stöðu þýðingarinnar, finna
þar skrá sem þarf að þýða eða uppfæra, smella á hana til að hlaða henni
niður og svo senda hana í tölvupósti til einhvers sem hefur aðstöðu til að
setja í cvs ?
Kostir þessa ferlis er að fólk þarf ekkert að kunna á xpi skrár, cvs eða
neitt annað, getur notað uppáhalds ritilinn sinn eða til þess ætluð tól eins
og kbabel til þýðinganna í stað þess að nota eitthvað vefandlit.
--
Rikki. -- RHCE, RHCX, HP-UX Certified Administrator.
-- Solaris 7 Certified Systems and Network Administrator.
Bell Labs Unix -- Reach out and grep someone.
Those who do not understand Unix are condemned to reinvent it, poorly.
- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -