Arnar Leósson
Mon, 06 Jun 2005 02:53:18 -0700
Sælt veri fólkið. Þar sem ég var hundleiður á útliti is.kde.org vefsins, ákvað ég að nota tímann á meðan KDE var að breyta öllu yfir í Subversion til að skipta honum út.
Eftir smá umhugsun (er dáldið tregur) fann ég út að það besta væri að sjálfsögðu að notast við sama útlit og uppbyggingu og www.kde.org notar. Og tada. Nýr vefur kominn. Áhugasamir geta skoðað hann á sömu slóð og sá gamli var á, þ.e.a.s. www.is.kde.org Vantar alltaf meira íslenskt efni um hvað sem er, sem hefur með KDE að gera. Vantar t.d. þýðingarleiðbeiningar (er aðeins byrjaður, en er að flækja fyrir mér hve (ó)nákvæmar ég á að hafa þær), leiðbeiningar um hvernig á að fá íslenskuna inn í nýuppsetta Linux dreifingu, þýðingar af FAQ skrám, leiðbeiningar um t.d. uppsetningu á KMail, kóðun af mp3 skrám, kóðun í DivX, whatewer, .... Ef þú (já. þú) hefur eithvað sem passar, þá endilega senda mér textaskrá, html skjal, doc skjal, tölvupóst, póstkort, flöskupóst, hugskeyti, eða hvaða snið sem er og mun ég hræra því inní vefinn. Vantar einnig aðila sem geta verið tengiliðir íslenska KDE hópsins í http://www.is.kde.org/contact/representatives.php Ekki meira í bili... Kveðja, Arnar Leósson - 8< - - - Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/ Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn. Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta. - - - >8 -