Jæja vinir!
Ég athugaði hvað skyldi gera með ThinkGeek málið.
Sko:
> -----Original Message-----
> From: Lilja Sturludóttir [mailto:[EMAIL PROTECTED]]
> Sent: 11. janúar 2001 10:55
> To: '[EMAIL PROTECTED]'
> Subject: Vísað er til fyrirspurnar, dags. 8. janúar sl.
>
>
> Sæll,
>
> það er til svars við fyrirspurninni að það skal greiða
> aðflutningsgjöld af
> öllum vörum sem fluttar eru inn til landsins, sbr. 4. gr. tollalaga.
> Ferðamenn njóta tollfríðinda að vissu marki vegna vöru sem
> þeir hafa með sér
> að utan til eigin nota eða til gjafa en þeir sem panta vöru í
> gegnum netið
> að utan eða með öðrum hætti njóta ekki tollfríðinda.
> Aðflutningsgjöldin
> velta á því hvaða vara á í hlut og hvaðan hún kemur. Það er
> nauðsynlegt að
> vita hvaða vörur verða fluttar inn til þessa að veita upplýsingar um
> hugsanlegar inn- og útflutningstakmarkanir.
>
> F.h.t.
> Lilja Sturludóttir
>
Þannig að við munum eflaust þurfa að greiða talsverðan toll ;)
Hinsvegar munum við ekki láta það stöðva okkur!! Einhver sendi til mín (ja,
hérna!!) pöntun fyrir eitt stykki RTFM bolla, og þar sem að ég tók það ekki
niður samtímis verður viðkomandi vinsamlegast að senda mér þetta aftur
(sorry).
Ég skal taka að mér að taka við pöntunum, en síðan er það forgangsmál að
redda einhverri raunhæfari greiðsluaðferð takk fyrir. ThinkGeek tekur bara
Credit, og þar sem að ég er ekki beint með aldur til þess að hafa þannig
rusl verður einhver annar að redda því.
Viljiði samt vinsamlegast senda mér pöntunnina ásamt verði (á hverjum hlut,
og svo heildarverð...)
thx.
Smári
"Hey you sass that hoopy
Ford Prefect, there's a
frood who really knows
where his towel is."
-- Douglas Adams.