Sælir!
Eins og sumir ykkar vita endurskrifaði ég makehigh í perl. Það
virkar alveg eins (frá mínu sjónarhorni), en það virðast vera nokkrir böggar
í þessu. Ef Logi og Rikki gætu tekið þetta til sín og prufukeyrt væri það
ánægjulegt.
Annars á ég alveg eftir að bæta við því sem ég ætlaði upprunalega að
bæta við - eins og þið sjáið á commentasafninu neðst er ég að bæta við
prósentuútreikningshluta - sem sýnir prósentur hverrar skrár, og svo ætla ég
að láta hana skella einu <HR> neðst og hafa þar á eftir fullt af "global
statistics".
Kristófer nokkur stakk líka uppá því að breyta þessu í CGI - það væri
vissulega sniðugt.. ef einhverjum líst vel á það get ég skelt þessu yfir
(tekur 10 mín).
En aðal málið er með þessar path villur sem eru alltaf að koma. Látið mig
vita.
Smári.
"Hey you sass that hoopy
Ford Prefect, there's a
frood who really knows
where his towel is."
-- Douglas Adams.
makehigh.pl