Þórarinn spyr:
> plugin = íforrit
"Viðbót" hljómar a.m.m. betur en "íforrit".
Einhverntíman hélt ég að ég hefði heyrt "íforrit" vera notað um
"applet".
Er það vitleysa?
Á gamla góða Makkanum eru "(kerfis)viðbætur" það sama og "(system)
extensions", sem eru (n.k.?) reklar.
Þar eru táknmyndirnar fyrir viðbæturnar púsluspilsbitar, sem eru einmitt
líka táknmyndir notaðar fyrir photoshop "plug-in" og netscape "plug-in"
(a.m.k. á Makkanum).
saltkjöt og baunir, túkall.
Már Örlygsson
-----------------------------
designer & usability advocate
mailto:[EMAIL PROTECTED] - http://mar.anomy.net