Kæru KDE-þýðendur og Vinixarar.
Er þetta ekki eitthvað í áttina við það sem við vorum að ræða um
daginn? Plús aðeins meira. Eric Raymond og Alan Cox!

Ég ætla að skrá mig.

Böðvar

Bodvar Bjorgvinsson wrote:
> 
> -----Original Message-----
> From: Helga Jónsdóttir
> Sent: 6. febrúar 2001 13:35
> To: Bodvar Bjorgvinsson
> Subject: FW: Linux - ráðstefna og sýning 15. mars 2001
> 
> Sæll Böðvar,
> 
> Þar sem þú hefur verið að pæla í linux, þá datt mér í hug að þú gætir haft
> gaman af þessu.
> 
> Með bestu kveðju,
> Helga
> 
> Ágætu félagsmenn og aðrir á tölvupóstlistum Skýrslutæknifélagsins.
> 
> Fimmtudaginn 15. mars nk. stendur félagið fyrir ráðstefnu og sýningu um
> Linux. Ráðstefnan verður haldin í Tónlistarhúsi Kópavogs (Salnum) en þar er
> einnig góð aðstaða fyrir sýningu.
> 
> Þeir Eric Raymond og Alan Cox verða með erindi á ráðstefnunni en áhugamenn
> um Linux og frjálsan hugbúnað (open source) vita að þeir tveir eru meðal
> þekktustu manna í heiminum á þessu sviði.
> 
> Undirbúningsnefndin hefur áhuga á að fá ábendingar um fyrirlestra eða annað
> sem tengst gæti ráðstefnunni og einfaldast er að koma þeim á framfæri með
> því að svara þessum boðum og helst sem fyrst.
> 
> Einnig viljum við vekja athygli á sýningunni sem verður í tengslum við
> ráðstefnuna
> og gefum þeim sem hafa áhuga hér með tækifæri til að taka þátt í henni að
> uppfylltum skilyrðum.
> 
> Sú hugmynd hefur einnig komið fram að vera með sérstakt svæði fyrir plaköt
> eða "posters".  Þar geta áhugasamir félagsmenn komið á framfæri, á einfaldan
> og óformlegan hátt, ýmsum fróðleik tengdum Linux eða sýnt ráðstefnugestum
> hvernig Linux hefur verið notað við lausn verkefna á ýmsum sérsviðum.
> 
> Við reiknum með að þetta verði áhugaverð og fjölmenn ráðstefna og því er
> e.t.v.
> öruggast að skrá sig strax, t.d. með því að svara þessum boðum :)
> 
> Frekari upplýsingar verða birtar á:
> http://www.sky.is/Radstefnur/R15-03-01.htm
> 
> F.h. undirbúningsnefndar,
> Hólmfríður Arnardóttir,
> Framkvæmdastjóri Skýrslutæknifélags Íslands

-- 
   ___
 /  /  \   //  _/                  Bodvar Bjorgvinsson,
   | __/  __   _\        __   __   Document Control Supervisor
   |   \ /  \ /  \ \  /  __\ /     Tel. +354-431-2952
 _/ ___/ \__/ \__/  \/  \__/ |     GSM: +354-899-1552
 ===============================   e-mail: [EMAIL PROTECTED]

Reply via email to