Sælinú, Þá er KDE 2.1 loksins að frjósa að fullu. Þeir voru að tala um 2.1.1 útgáfu í dag eins og hefur verið gert áður og það kæmi sér mjög vel fyrir okkur þar sem fleiri hefðu þá tíma til að setja inn stöðuga KDE 2.1 pakka (vonandi verða þeir það :-) og þar með umhverfið til hliðsjónar í einhvern tíma til að fara yfir þetta og lagfæra. Ég setti ekki inn nema um 15 skrár í dag því ég fékk ekki fullt helgarfrí en þó að það sé margt sem má laga þá eru líka margar þýðingar mjög góðar. Það er ólíkt betra að nota Konqueror núna þegar hann er orðinn al-íslenskur :-) Kveðja, Tóti. P.S. Óþýdd forrit hjá okkur skv. KDE eru nú http://i18n.kde.org/stats/gui/is-highscore.html
