Árni Matthíasson wrote:
> 
>                                                          vert væri að
> skrifa forstjóra ACO kurteislegt bréf og benda honum á að hann vaði í
> villu og svíma.

Og e.t.v. að senda afrit til Íslands í bítið svo þau viti að viðkomandi
gestur hafi verið að fara með rangt mál (og vekji e.t.v. áhuga hjá þeim að
leiðrétta).

Í tengslum við þetta átak sem verið er að stinga upp á ætti e.t.v. að setja
skemmtilegt efni á heimasíðu hópsins, t.d. skjámyndir af KDE 2.1 á íslensku
með öllu því besta sem búið er að íslenska, vekja auðvitað sérstaka athygli
á Koffice og Konqueror.  Á þeim nótum, www.is.kde.org svarar ekki beiðnum...

Kveðja, Erlendur.

-- 
Erlendur Smári Þorsteinsson / Erlendur Smari Thorsteinsson
<esth_hjá_cmu_punktur_edu> / <esth_at_cmu_dot_edu>

Reply via email to