Sæl öll, Þessi póstur er fyrir þá sem hafa notað aðganginn minn að CVS og síðar Subversion til að setja íslenskar þýðingar inn í KDE. Héðan í frá þurfið þið annaðhvort að sækja um ykkar eigin aðgang eða senda skrárnar til einhvers sem er með aðgang. Það væri því ágætt ef þeir sem enn hafa aðgang bjóði sig fram. :-) Mitt notandanafn og lykilorð virkar ekki lengur og það má geta þess að KDE vill ekki að menn deili aðgangi. Ef þið hafið eitthvað þýtt hingað til þá getið þið skrifað Stephan Kulow ( [EMAIL PROTECTED] ) til að fá ykkar eigin aðgang. Hann þarf notandanafn og dulritað lykilorð frá ykkur. Kveðja, -Þórarinn
- 8< - - - Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/ Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn. Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta. - - - >8 -
