KDE 3.5 útgáfutilkynning
==============================

29. nóvember 2005 - KDE verkefnið er stolt af að tilkynna um nýja stórútgáfu 
af margverðlaunaða K skjáborðinu. Mörgum nýjungum og endurbótum hefur verið 
bætt við og gera þær KDE að mest heilsteypta, stöðuga og samtvinnaða frjálsa 
skjáborðinu á markaðinum.

Helstu breytingar eru:
* Konqueror er veflesari númer tvö til að standast Acid2 CSS prófið, á undan    
                                                                        
Firefox og Internet Explorer.
* Konqueror getur nú hindrað auglýsingar frá vefsíðum.
* SuperKaramba er innifalið í KDE og býður það upp á auðvelda innsetningu af    
ýmsum viðbótum við notandaskjáborðið.
* Kopete styður nú MSN og Yahoo! vefmyndavélar.
* Þrjú ný forrit hafa bæst við kennsluleikseininguna (KGeography, Kanagram og 
blinKen), og Kalzium hefur tekið stórum framförum.

Fyrir nánari lista yfir breytingar, ásamt skjámyndum og útskýringum, skoðaðu 
KDE 3.5 yfirlitið á: http://www.is.kde.org/announcements/announce-3.5.php

Stephan Kulow, útgáfustjóri KDE, hafði þetta að segja: "Endurbæturnar sem hafa 
verið gerðar á seinasta árinu sýna hve þroskað KDE verkefnið er orðið. KDE er 
öflugasta skjáborðs og hönnunarumhverfið á markaðinum. KDE 3.5 mun bjóða 
notendum upp á hina fullkomnu skjáborðslausn næstu tvö árin, með væntanlegum 
stórbreytingum í KDE 4."


- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -

Reply via email to