(cc: á [email protected]) RSS fyrir póstlistann er til, en ég veit n.b. ekki hvort hópurinn noti enn póstlistann, það má vera að starfsemin hafi öll fært sig yfir á vefinn, http://www.is.kde.org/
Það væri reyndar mjög gott að fá svar við því svo hægt sé að loka listanum ef hann er ekki lengur í notkun. RSS póstlistans er hér: http://www.molar.is/listar/kde-isl/index.rss Hmm, og ég sé að þetta er pínu böggað... Ef einhver segist nota listann þá kannski nenni ég að laga þetta. ;-) Þann 2006-12-13, 09:04:36 (+0000) skrifaði Sveinn í Felli: > Sæll; > > Ég vil byrja á því að þakka fyrir þetta fína listaumhverfi sem þú hefur gefið > til samfélagsins. RSS- flippið sem þú fórst á gerði það svo ennþá gagnlegra; > það er svo einfalt að fylgjast með þannig. > > Sjálfur er ég bara að baksa við þýðingar á forritum; KDE myndvinnslu, Gimp og > Scribus (kannski CUPS og Gutenprint síðar). Eftir að BASIC hætti að vera > aðalforritunarmálið hef ég lítið átt við forritun (skrifta pínu í > php/sql/html)...:) > > Annars var erindið að spyrja hvort það sé mikið mál að setja upp rss straum > fyrir kde-isl póstlistann ? > > Þótt hann sé ekkert gríðarlega virkur þessa dagana, þá fer að líða að > sjósetningu KDE4 og þá gæti eitthvað farið að gerast. Persónulega finnst mér > fínt að safna skyldum hlutum saman, td. allt KDE stöffið saman og með RSS > getur maður lesið fyrirsagnirnar ansi hratt án þess endilega að fara í > skeytin sjálf. Svo má nota Agregator nú eða LifandiBókamerki í Firefox til að > tékka á nýjustu hreyfingum. Ég er til dæmis með RSS-tengil á Partalistann hér > á tólastikunni á mínum rebba :) Kíki á helstið amk. daglega (kann líka á > skrúfjárn)... > > Bestu kveðjur úr sveitinni > > Sveinn -- Bjarni Rúnar Einarsson [EMAIL PROTECTED] http://bre.klaki.net/ PGP: 02764305, B7A3AB89 - 8< - - - Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/ Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn. Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta. - - - >8 -
