Jæja, nú vill svo heppilega til að undanfarið hef ég verið að vinna með charset kóðun í Perl. Það sem var mér um megn þegar ég skrifaði póstlistakerfið hérna í fornöld reyndist auðlagað í dag. ;-)
Ég held semsagt að bréf ættu að berast læsilega núna. Spurning hvort einhver utf-8 notandi (Stefán?) vilji svara þessum pósti til að sjá hvort það hefur tekist hjá mér? Endilega með CC á [EMAIL PROTECTED] beint svo ég hafi bæði póstlista-útgáfu og upprunalega útgáfu til að bera saman ef síðustu breytingar hafa ekki dugað. Þann 2008-01-03, 17:03:45 (+0000) skrifaði Bjarni R. Einarsson: > Þann 2008-01-03, 15:37:31 (+0000) skrifaði Elías Halldór Ágústsson: > > Þetta er hönnunargalli sem hefur verið á póstlistakerfinu frá fyrstu tíð > > en er nú fyrst að verða að alvarlegu vandamáli. > > Jebb. Ég hef vitað af þessu lengi en ekki nennt að laga. > > Þetta var ólíkt því sem Elías heldur fram ekki "án ástæðu"... en > ástæðan var ekki nægilega góð til að ég muni hver hún var. ;-) > > Helst vildi ég færa molar.is einfaldlega yfir í annað póstlistakerfi, > en hef af ýmsum ástæðum ekki náð að hrinda því í framkvæmd. Þori > ekki að lofa að það breytist á næstu dögum, en ég sé til hvað ég > get gert. -- Bjarni Rúnar Einarsson [EMAIL PROTECTED] http://bre.klaki.net/ PGP: 02764305, B7A3AB89 - 8< - - - Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/ Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn. Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta. - - - >8 -
