Re: [Talk-is] Hvernig á að merkja bílastæði við götu í OSM?

2020-03-18 Thread Svavar Kjarrval

Sæl öll.

Ef ég er í vafa lít ég oft á OSM wiki síðuna fyrir það sem ég er 
forvitinn um og met svo með hliðsjón af álitaefninu sem ég er að spá í 
og hvort þær séu gagnlegar upp á alþjóðlega samræmið. Hið síðastnefnda 
getur verið gagnlegt upp á líkurnar á erlendum tólum, hvort sem það er 
kortagerðarhugbúnaður, OSM quality assurance hugbúnaður, eða möguleikinn 
á tölfræðiupplýsingum.


Við lestur á Tag:amenity=parking og Key:parking:lane sýnist mér að það 
ætti að nota hið síðarnefnda fyrir bílastæði meðfram götum (merkt á 
götulínunni sjálfri) en hið fyrrnefnda þegar um er að ræða sérstök svæði 
og/eða byggingar í þeim tilgangi. Því teldi ég persónulega gagnlegra að 
umbreyta þeim merkingum þar sem bílastæðasvæði eru merkt meðfram götum 
yfir í viðeigandi parking:lane gildi [1] eftir því sem tilefni er til.


[1] Sjá https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:parking:lane .

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 6.2.2020 13:41, Arni Davidsson wrote:

Sæl

Ég er að velta fyrir mér merkingum á bílastæðum í OSM.
Bílastæði við götu sem eru með gjaldskyldu hafa verið merkt að því er 
virðist með 'Tag:amenity=parking' og teiknaður flötur sem sýnir 
afmörkun bílastæðisins. Samsvarandi bílastæði án gjaldskyldu virðast 
þó sjaldan eða aldrei merkt.


Er rétt að merkja bílastæði samsíða götu með þessum hætti? Eru þau 
kannski merkt svona til að getað sett inn upplýsingar um gjaldskyldu, 
fjölda stæða o.s.frv.


Er réttara að merkja þau á einhver hátt sem hluta götunnar og er hægt 
að merkja þau þannig?


Þess má geta að ég hef sérstakan áhuga á fjölda bílastæðanna og að 
geta dregið út þær upplýsingar sem eru settar inn um bílastæði úr OSM 
og unnið með þær síðar og tekið saman yfirlit yfir fjölda og gerð stæða.


kveðja
Árni Davíðsson

--
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com 

___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


Re: [Talk-is] Hvernig á að merkja bílastæði við götu í OSM?

2020-02-06 Thread Páll Hilmarsson
Heil og sæl.

 

Ég ætla ekki, a.m.k. á þessu stigi, að viðra skoðanir á því hvernig bílastæði 
eru merkt, en vil hinsvegar benda á kortaþjón Reykjavíkurborgar þar sem 
bílastæði í borgarlandinu eru merkt:

http://reykjavik.maps.arcgis.com/apps/webappviewer/index.html?id=607425377d0c48dba195a1f58fa4426f

 

Bestu kveðjur,

 

Páll Hilmarsson

 

From: Arni Davidsson  
Sent: fimmtudagur, 6. febrúar 2020 13:42
To: OpenStreetMap in Iceland 
Subject: [Talk-is] Hvernig á að merkja bílastæði við götu í OSM?

 

Sæl

 

Ég er að velta fyrir mér merkingum á bílastæðum í OSM.

Bílastæði við götu sem eru með gjaldskyldu hafa verið merkt að því er virðist 
með 'Tag:amenity=parking' og teiknaður flötur sem sýnir afmörkun bílastæðisins. 
Samsvarandi bílastæði án gjaldskyldu virðast þó sjaldan eða aldrei merkt.

 

Er rétt að merkja bílastæði samsíða götu með þessum hætti? Eru þau kannski 
merkt svona til að getað sett inn upplýsingar um gjaldskyldu, fjölda stæða 
o.s.frv.

 

Er réttara að merkja þau á einhver hátt sem hluta götunnar og er hægt að merkja 
þau þannig?

 

Þess má geta að ég hef sérstakan áhuga á fjölda bílastæðanna og að geta dregið 
út þær upplýsingar sem eru settar inn um bílastæði úr OSM og unnið með þær 
síðar og tekið saman yfirlit yfir fjölda og gerð stæða.

 

kveðja

Árni Davíðsson


 

-- 

Árni Davíðsson
arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com> 

___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


[Talk-is] Hvernig á að merkja bílastæði við götu í OSM?

2020-02-06 Thread Arni Davidsson
Sæl

Ég er að velta fyrir mér merkingum á bílastæðum í OSM.
Bílastæði við götu sem eru með gjaldskyldu hafa verið merkt að því er
virðist með 'Tag:amenity=parking' og teiknaður flötur sem sýnir afmörkun
bílastæðisins. Samsvarandi bílastæði án gjaldskyldu virðast þó sjaldan eða
aldrei merkt.

Er rétt að merkja bílastæði samsíða götu með þessum hætti? Eru þau kannski
merkt svona til að getað sett inn upplýsingar um gjaldskyldu, fjölda stæða
o.s.frv.

Er réttara að merkja þau á einhver hátt sem hluta götunnar og er hægt að
merkja þau þannig?

Þess má geta að ég hef sérstakan áhuga á fjölda bílastæðanna og að geta
dregið út þær upplýsingar sem eru settar inn um bílastæði úr OSM og unnið
með þær síðar og tekið saman yfirlit yfir fjölda og gerð stæða.

kveðja
Árni Davíðsson

-- 
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com
___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is