Sæl verið þið.

Við erum aðeins búin að vera að laga til yfirlitið yfir lögbýli. Staðan núna er sú að af um rúmlega 5000 lögbýlum eru 1100 merkt á kortið að því að við vitum. Hugsanlega eru fleiri merkt á kortið en ekki er búið að staðfesta það á þessum yfirlitsvef okkar.

URL: http://osm.hlidskjalf.is/

Það er frekar einfalt að nota þetta, maður skráir sig inn sem OpenStreetMap-notandann sinn, velur landsvæði, getur svo valið póstnúmer og farið svo yfir þar sem er merkt með gráu. Það eru beinir tenglar yfir á OSM-editor (sjálfgefinn editor er notaður, fer eftir þinni stillingu á OpenStreetMap) fyrir viðkomandi bæ og oftast er líka einfalt að teikna upp húsin og smella nafninu inn sér sem place=farm.

Við erum að vinna í svipuðu kerfi fyrir þéttbýlisstaði, við höfum haldið utan um ástand þeirra á Trello en ætlum að færa okkur yfir núna með sumrinu. Íslenskustuðningur verður þá virkjaður líka.

Spurningar, ábendingar, allt vel þegið.

Dæmi um póstnúmer sem er búið að yfirfara: http://osm.hlidskjalf.is/logbyli.php?s=h&p=113&k=&v=&b=&l= Dæmi um póstnúmer sem er í vinnslu: http://osm.hlidskjalf.is/logbyli.php?s=h&p=116&k=&v=&b=&l=

kveðja,
Jóhannes

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to