Sæl öll Við höfum fengið jákvæð svör frá Richard. Allur textinn er almenningseign og ef ég skil rétt falla hnit örnefna líka undir það. Dugir þetta okkur sem leyfi til að nota hnitin og örnefnin eða þurfum við að fá það á hreint frá Oddi hver uppruni hnitanna er?
Ég ætla að senda annan póst og spyrjast fyrir um þennan GIS gagnagrunn sem hann minnist á, upp úr hvaða gögnum þau eru unnin. Er einhver með á hreinu hvaða ár loftmyndirnar sem jöklar í grunninum okkar eru teiknaðir eftir eru teknar? En annað tengt mál. Hvernig ber að skrá svona gögn inn í gagnagrunnin okkar. Á að teikna skriðjökla sem sér polygon eða á að láta stakan punkt með nafni og öðrum eigindum duga á skriðjökla? Ég tók eftir að því að Ævar hefur einhverntímann teiknað Sólheimajökul sem sér jökul frá Mýrdalsjökli (á kanski að vera svo, ég er enginn sérfræðingur í örnefnum jökla). Ættum við kanski að nota tengsl til að tákna þetta eða fer þá allt í rugl varðandi renderingar og önnur tól sem notast við jöklagögnin? Endilega komið með ykkar skoðanir. Þegar ég hugsa um Vatnajökul þá finnst mér það nafn eiga við allan jökulinn, einnig alla skriðjökla sem úr honum ganga. Hverjar eru skoðanir ykkar á þessu máli? _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
