Sælir,

Flott þetta! Líst sjálfur ágætlega á þetta plan en það gæti verið vert
að skoða hvernig menn staðið að þessu áður, samanber með Tiger
"importin" í USA of fleira.

kveðja,
Davíð


On Sun, 2010-01-10 at 22:08 +0000, Svavar Kjarrval wrote:
> Sæll Ævar.
> 
> Verð að óska þér til hamingju með árangurinn, svo ég byrji á hrósi.
> 
> Það er alltaf galli á gjöf Njarðar, ef manni leyfist að nota það orðtak, 
> þegar kemur að gögnunum frá OFP. Alveg eins og hjá OSM eru hnútarnir 
> misnákvæmir eftir því hver safnar þeim og með hvaða tæki. Því verð ég að 
> nefna að það yrði erfitt að meta hvort OSM eða OFP hafi betri útgáfu af 
> ákveðnu svæði/veg.
> 
> Í versta falli, þótt okkur takist ekki að nýta ferlana hans, væri að 
> setja alla vegi sem „of öðruvísi“ eða vantar alveg, yfir í 
> OpenStreetBugs og við tækifæri gæti sjálfboðaliði safnað nýjum hnútum. Í 
> framhaldinu ætti að koma fram ný mæling sem hægt sé að taka tillit til.
> 
> Með kveðju / With regards,
> Svavar Kjarrval ([email protected])
> s. 863-9900
> 
> 
> 
> Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
> > Ég er búinn að vera í sambandi við Tom sem heldur við ourFootPrints á
> > síðasta ári og þessu um að leggja til gögn til OpenStreetMap.
> >
> > Fyrir þá sem ekki kannast við ourFootPrints er það verkefni eldra en
> > bæði OpenStreetMap og Google Maps þess efnis að búa til kort af
> > Íslandi sem hefur frá upphafi verið verkefni eins manns.
> >
> > Tom að mestu rakið vegi bæði frá egin GPS ferlum og u.þ.b. 30 annara
> > sem hafa sent honum gögn en hann segir að um 95% af kortinu sé búið
> > til svona, 5% er teiknað eftir lokuðum kortum (LMÍ kortum geri ég ráð
> > fyrir), ár, vötn, jöklar og strandlengjan eru svo teiknuð eftir Google
> > Satellite myndum.
> >
> > Ég er að vinna í því að vinna úr dumpi af GPX tracks og vegum sem Tom
> > sendi mér og er áætlunin að hlaða þessu upp í þeirri röð undir nafni
> > sérstaks upload notanda þegar ég er búinn að laga þetta aðeins til.
> >
> > Ég er þegar búinn að gera fyrsti tilraun til að breyta þessum gögnum í
> > .osm skrá, þetta eru 29MB af .osm gögnum samanborið við þau 67MB sem
> > allt ísland er í dag. Hérna er afraksturinn:
> >
> >     !!! EKKI HLAÐA ÞESSU UPP EÐA REKJA EFTIR ÞESSU:
> > http://v.nix.is/~avar/noindex/ourfootprints/ofp.osm.bz2 !!!
> >
> > Það á eftir að vinna þetta frekar áður en hægt er að hlaða þessu upp,
> > en endilega skoðið þetta. Á myndunum sem fylgja póstinum má sjá
> > suðurlandsundirlendið og Kópavoginn þar sem vegirnir frá ourFootPrints
> > sjást gráir í bakgrunninum. Einnig er skjáskot með GPX ferlunum
> > meðfylgjandi.
> >
> > Hérna er planið til að koma þessu inn sem fyrst:
> >
> >   1. Ég bý til notanda sérstaklega til að hlaða þessu upp
> >   2. Hleð upp GPX ferlunum með réttum töggum
> >   3. Breyti forritinu sem býr til þessa .osm skrá hér að ofan þannig
> > hún sé c.a. rétt, t.d. búi ekki til highway=motorway
> >   4. Breyti henni þannig hún bæti við réttum töggum í þetta import,
> > t.d. source=ourfootprints ourfootprints:source=some_gpx_track og annað
> > sérdót
> >   5. Breyti öllum "highway" tags í "ofp_highway"
> >   6. Hlaði þessu upp
> >
> > Þá verðum við með slatta af "ofp_highway" vegum sem sjást ekki á t.d.
> > mapnik, garmin kortinu en sjást í grunngögnunum, svo vinnum við saman
> > í að gera, eftir tilfellum:
> >
> >   * Eyða þessum vegum (því við erum með betri útgáfu á kortinu nú þegar).
> >   * Eyða okkar vegum (því ofp vegurinn er betri).
> >   * Breyta "ofp_highway", í "highway" tengja veginn við OSM gögnin og hlaða 
> > upp.
> >
> > Svona ættum við að geta unnið saman í því að sameina osm og ofp
> > grunninn á ekkert svo lóngum tíma þótt gagnagrunnurinn verði aðeins
> > subbulegur í millitíðinni.
> >
> > Mér allavegana líst betur á þetta heldur en að reyna sjálfkrafa að
> > finna út hvaða vegir mega fara inn og hverjir ekki eða að ég sorteri
> > þetta allt sjálfur. Það tekur langann tíma og þarnast sérhugbúnaðar
> > sem verður örruglega til þess að þetta klárast seint eða aldrei.
> >
> > Hvað finnst ykkur?
> >   
> >
> > ------------------------------------------------------------------------
> >
> >
> > ------------------------------------------------------------------------
> >
> >
> > ------------------------------------------------------------------------
> >
> > ------------------------------------------------------------------------
> >
> > _______________________________________________
> > Talk-is mailing list
> > [email protected]
> > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> >   
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> [email protected]
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to