Á síðasta fundi (31. ágúst) í umverfis- og samgönguráði var eftirfarandi bókað, sjá fundargerð í heildsinni hér: http://fundir2.reykjavik.is/fundargerdir.asp?cat_id=31&mtg_id=1597515648603440&print=true&nolayout=
"8. Hjólavefsjá fyrir Reykjavík Lögð fram á ný tilaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks ásamt greinargerð: Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði leggja til að gerð verði Hjólvefsjá fyrir Reykjavík. Vefsjáin verði gagnvirk vegvísun sem sýnir borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt. Borgarbúar geti slegið inn upphafsstað og leiðarenda, og vefurinn sýni um leið fljótlegustu leiðina, öruggustu leiðina, vegalengd og ferðatíma. Umhverfis- og samgönguráð bókaði: Útfærsla hjólavefsjár skal leitast við að nýta þá lausn sem felur í sér opinn hugbúnað og opin gögn, enda sé það í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar í upplýsingatæknimálum. Jafnframt verði hafin vinna við gerð vefsjár fyrir gangandi vegfarendur. Tillagan var samþykkt einróma." Það var haft samband við mig á föstudag og ég mun hitta fólk frá umhv.&samg.ráði og LUKR í næstu viku. Í millitíðinni megið þið hjálpa mér að finna flottasta hjólakortið á OSM-kringlunni til að sýna þeim hjá borginni :) kv. Björgvin _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
