Sælt fólk!

Nú eru liðnir 12 dagar síðan ég sendi inn fyrstu breytinguna út frá stígagögnunum í Garðabæ en þær breytingar hafa samt ekki ratað inn í hjólavefsjána. Það sama gildir um þau hverfi í Reykjavík með yfirfarna LUKR stíga.

Er eitthvað (ekki) að gerast sem við ættum að vita af? Forsendan fyrir því að við fengum LUKR gögnin ókeypis var einmitt sú að stígarnir ættu að birtast á ridethecity.com. Því er það mikilvægt fyrir okkur að vita hvað veldur þessum skorti á uppfærslum.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to