Sæl, Guðmundur Bjarni kunningi minn (í CC) hefur verið í sambandi við Strætó undanfarna mánuði varðandi að fá gögn frá strætó til að geta búið til forrit í símann með uppl. um næsta strætó. Fyrir nokkrum vikum fékk hann excel skjal með með öllum biðstöðvum strætó, https://docs.google.com/spreadsheet/ccc?key=0Ag6sYRl_wciAdFlOd3lEQU1JZlNKb1NJSmtNb1RfU0E&hl=en_US#gid=0. Einar Örn stjórnarmaður í Strætó Bs. sendi honum þetta og í tölvupóstinum stóð að "þetta er opið og sjálfsagt að deila áfram". Ég snaraði þessu svo á OSM format, http://pastebin.com/raw.php?i=kEkiGAHS, með eftirfarandi skriftu: https://github.com/nifgraup/straeto-utilities.
Hefur einhver skoðun á þessari vörpun hjá mér, þ.e. "stutt nafn" verður name og "langt nafn" verður alt_name? Einnig, hvernig haldið þið að best sé að setja þetta inn með tilliti til gagnanna sem fyrir eru? Ath. að það er möguleiki að við fáum fleiri gögn, t.d. hvaða leiðum hvert stopp tilheyrir. Starfsmaður Strætó bs. sem er að semja pólisíu um afhendingu gagna til almennings hafði samband við Guðmund og spurði út í hvað fleira gæti nýst. Björgvin
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
