Ég kíkti á Mosfellsbæ og sé þetta sama misræmi þar. Myndirnar eru fínar til 
viðmiðunar við kortagerðina en nýtast ekki beint þar sem þær eru ekki rétt 
hnitaðar inn. Ég veit fyrir víst að þetta eru loftmyndirnar sem eru rangar og 
göturnar réttar, svo langt sem það nær. Klárlega eru göturnar mun nær lagi en 
loftmyndirnar.

Dettur einhverjum í hug leið til að leiðrétta fyrir svona skekkju sjálfvirkt, 
t.d. með auka lagi af BING myndum með innbyggjanlegri, stillanlegri "skekkju" 
til að leiðrétta skekkjuna sem er þarna núna? Þá gæti maður tekið minni svæði í 
einu, leiðrétt fyrir skekkjunni og notað myndirnar þá þannig, skref fyrir 
skref. Er að hugsa upphátt... en kannski er þetta galið af einhverri augljósri 
ástæðu.

kv,
Baldvin

-----Original Message-----
From: Helmut Neukirchen [mailto:[email protected]] 
Sent: 18. júní 2012 22:41
To: OpenStreetMap in Iceland
Subject: Re: [Talk-is] Varðandi loftmyndir af Garðabæ




_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to