Hæ. Það gengur nokkuð hægt að ákveða málið varðandi póstnúmeraskrá inn á Wiki-inu ( https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Iceland_postal_code_database) svo ég vil flytja umræðuna hingað.
Að mínu mati ættum við að merkja relations með götuskrá:id (eða hentugri merkingu) og síðan keyra scriptuna reglulega sem fer yfir gögnin. Scriptið myndi bæta við þeim tögum sem á vantar og uppfæra þær upplýsingar sem hafa breyst. Það væri hægt að keyra það handvirkt í hverri viku eða mánuði. Ástæðan fyrir því að ég sé fylgjandi relations er að vegir skiptast nokkuð oft í marga hluta og það gæti verið helvíti að viðhalda slíkri skráningu á þeim. Auk þess er það betra til þess að leita eftir húsi þar sem húsið sjálft væri í viðkomandi relation. It just makes sense. :þ Mig langar helst að klára þetta mál sem fyrst þar sem ég verð líklegast búinn að teikna öll hús fyrir Hafnarfjörð fyrir sumarlok (eða jafnvel í lok júlí) og setja húsnúmer á þau. Mig langar helst að geta sett götuskrá:id í þessi relation sem ég bý til vegna þessa, svo upplýsingarnar muni rata þangað á endanum. Hver er ykkar skoðun? - Svavar Kjarrval
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
