Nú er þetta komið lengra en ég er búinn að setja inn íbúðarhverfin fyrir utan fáeinar götur hér og þar.
Þá er að koma að þeirri stundu að ég fari milli fyrirtækja í upplýsingasöfnun. Mig langar að fá álit ykkar á eyðublaði sem ég ritaði af því tilefni (og er í viðhengi). Ég myndi s.s. fara með eintök af því milli fyrirtækja (verslana) og fylla út. Einnig leita ég að sjálfboðaliðum til þess að aðstoða mig með þetta. - Svavar Kjarrval On 18/07/12 21:39, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote: > Þetta er frábært, vel gert! > > 2012/7/18 Svavar Kjarrval <[email protected]>: >> Hæ. >> >> Eftir mikla vinnu get ég með ánægju sagt að Hafnarfjörður er ágætlega >> nálægt því að vera kláraður. Flestar, ef ekki allar götur, hafa verið >> leiðréttar í samræmi við BING loftmyndirnar og húslínur eru til staðar >> svo langt sem loftmyndirnar leyfa. Meiri hluti húsa bæjarins hafa verið >> merkt með húsnúmerum og tengdar við götur en það ferli mun líklegast >> klárast á næstu tveim vikum. >> >> Mig langar að biðja ykkur um að nostra smá við bæinn líka svo hægt sé að >> senda út fréttatilkynningu þegar það helsta er komið. Það sem mætti gera >> er að bæta við fleiri gangstígum, gangbrautum, notkun landsvæða (landuse >> tagið) og fleira sem hægt er að álykta út frá loftmyndunum. Ef ykkur >> grunar að eitthvað sé rangt en skortir upplýsingar til að laga það, >> merkið villuna með OpenStreetBugs. >> >> Húsnúmeramerking og POI söfnun er í gangi af minni hálfu en það myndi >> varla saka ef þið gætuð bætt við því sem þið vitið af nú þegar. >> >> Með kveðju, >> Svavar Kjarrval >> >> _______________________________________________ >> Talk-is mailing list >> [email protected] >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >> > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
OSM eyðublað.odt
Description: application/vnd.oasis.opendocument.text
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
