On 05/08/12 17:24, Svavar Kjarrval wrote: > Hæ. > > Þar sem Tryggvi mun líklegast vera of upptekinn til þess að hafa > mánudagshitting FSFÍ ætla ég að ræna atburðinum og láta hann snúast um > OpenStreetMap (OSM). Þessi ákveðni hittingur er fyrir okkur sem af > einhverjum ástæðum eru á höfuðborgarsvæðinu um þessa helgina. Ef mikill > áhugi er meðal þeirra sem geta ekki mætt er alveg möguleiki að endurtaka > fundarefnið síðar. > > Á fundinum verður tekið fyrir hvernig hinn venjulegi einstaklingur getur > hjálpað til við gagnaöflun fyrir OSM án þess að gera þá kröfu að hann > setji gögnin inn sjálfur. Síðan eru til leiðir til gagnaöflunar sem gera > fólki kleift að afla gagna án þess að fara út úr húsi eða breyta dagskrá > sinni. Mikið verk er fyrir höndum og því væri gott ef fleiri myndu taka > þátt í gagnaöflun þar sem mörg svæði þarfnast frekari gagna, bæði á > höfuðborgarsvæðinu[1] og út á landi. > > OpenStreetMap er verkefni rekið í þeim tilgangi að útvega frjáls og opin > kortagögn fyrir allan heiminn. Gögnin er hægt að nota í ýmsum tilgangi, > meðal annars til þess að búa til kort yfir hjólastólaaðgengi [2]. > > > [1] http://www.openstreetmap.org/?lat=64.1027&lon=-21.8814&zoom=12&layers=M > [2] http://wheelmap.org/?zoom=17&lat=64.14719&lon=-21.94193&layers=BT > > Með kveðju, > Svavar Kjarrval >
Hann fer fram að venju í Bíó Paradís að Hverfisgötu kl. 20:00 og stendir til um 22:00. http://www.openstreetmap.org/export/embed.html?bbox=-21.927413,64.144789,-21.92331,64.146674&layer=mapnik&marker=64.14570,-21.92601 - Svavar
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
