Sæll, Það er lítið mál að sækja upplýsingar úr rauntímakortinu og ég á einmitt eina slíka sem sækir gögnin á 15 sec fresti, og það væri auðvelt að sía út fyrir ákveðnar leiðir.
Ég held að aðal spurningin verði hverskonar leyfi þeir séu með á þessum gögnum og hvort þeir vilji yfir höfuð að þau séu notuð í þessum tilgangi. kveðja, Guðmundur Bjarni 2012/8/25 Svavar Kjarrval <[email protected]> > Hæ. > > Fréttablaðið fjallaði í morgun um áætlanir Strætós að keyra reglulega út á > land ( > http://www.visir.is/straeto-bydur-ferdir-til-fjorutiu-kaupstada/article/2012708259907). > Það eitt er ekki nýtt en hins vegar getur það orðið gagnlegt fyrir okkur. > > Þessar ferðir verða án efa á rauntímakortinu á straeto.is og við getum > notað það til að fá GPS hnit af þjóðveginum. Það eina sem einhver þyrfti að > gera væri að semja scriptu sem flettir nokkuð oft upp á rauntímakortinu og > skrá niður hnitin í gagnagrunn. Hnitin gætum við síðan importað í editor og > notað til að leiðrétta þjóðveginn. Því oftar sem Strætó keyrir um svæðið, > því nákvæmari ætti þjóðvegurinn að geta orðið inn á OSM. Gefið að það sé > ekki þá þegar til nákvæmari gögn fyrir svæðið. > > Þessi sama hugmynd gildir fyrir núverandi ferðir Strætós um suðurlandið. > > - Svavar Kjarrval > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is > >
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
