Hæ. Lokaútgáfan af bréfinu er komin á wiki-ið og ég er búinn að fá allt úr prentun. Set allt í póst á morgun.
- Svavar Kjarrval On 06/09/12 02:43, Svavar Kjarrval wrote: > Hæ. > > Takk kærlega fyrir að gefa þér tíma fyrir þessar pælingar. Hef framkvæmt > breytingar á bréfinu í samræmi við pælingarnar þínar og eru þær komnar á > wiki síðuna. Því miður þurfa svona erindi að vera stutt svo ég taldi > best að sleppa my-OSM pælingunni þinni. > > Fer á ljósritunarstofuna eftir hádegi á morgun svo að ef þið hafið > athugasemdir varðandi bréfið, komið með þær sem fyrst. Þetta eru 4 bls. > og 75 sveitar- og hreppsstjórnir eintak, sem gera samtals 300 blaðsíður. > Ekki hika við að láta vita ef þið hafið grun um að eitthvað gæti verið > orðað betur, stafsetningarvillur, málfarsvillur, eða eitthvað sem ætti > að vera öðruvísi. Vil ekki þurfa að borga fyrir endurprentun. > > ODT skjalið er í viðhengi svo þið getið séð hvernig þetta kemur út. > Setti líka inn bréfið eins og Hafnarfjörður myndi fá það svo þið getið > séð hvernig þetta kemur út. > > - Svavar Kjarrval > > On 06/09/12 00:26, Pjetur G. Hjaltason wrote: >> Sælir félagar, >> >> Fyrirgefið, og mín er *skömmin,* leit á þráðinn og sá að þú ætlaðir að senda >> bréfið í september, svo ég var ekki að hafa áhyggjur af þessu. >> Krassaði niður drög að svari, og var ekki komin neitt lengra. >> Tíminn líður svo ósköp hratt stundum. >> >> Þarft verk og gott - Sérstaklega ef við fáum viðbrögð. >> >> Eitt sem mér fannst þó vanta í bréfið - Það er að minna á hvurn *hag* >> sveitarfélögin hafa af þessu samstarfi. >> >> Ekki aðeins hvað *þeir* þurfa að tína saman handa okkur (tómt vesen). >> >> Enn og aftur *mín er skömmin,* og svona á ekki að gera kvöldið fyrir prentun. >> >> Og hér á eftir fylgir óskipulagt raus og hugleiðingar um OSM ! >> >> ================================================================ >> >> *Ferðagrunnur:* >> OSM er nú notað beint og óbeint sem ferða- og staðsetningargrunnur. >> >> Og það eru ekki bara Garmin GPS o.þ.h. leiðsögutæki sem taka við OSM kortum, >> heldur einnig allir snjallsímar (sem allir eiga eða eignast innann fárra >> ára). >> Ýmis forrit í android (og eflaust i* líka) nota OSM sem grunnkort við >> vegaleiðsögn, eða sem leit að þjónustu af ýmsu tagi. >> >> Ferðamenn, innlendir sem erlendir leita nú í símanum sínum að næstu >> bensínstöð, veitingahúsi, sundlaug, verslun, póstkassa, lækni..! og allt sem >> við skráum yfirleitt. >> >> Gönguleiðir, hjólaleiðir, reiðleiðir, aðgengi, áhugaverðir staðir (tengdir >> Wikipedia) >> >> Og það sem á við um farsíma, á ekki síður við um forrit á vefnum. >> Wikipedia og OSM eru órjúfanlega tengd :-) >> Þegar heim er komið, þá nota vefsíður flickr, iPhoto, yahoo og bing, OSM sem >> hluta af sínum leitar-og staðsetningar-síðum fyrir myndasafnið og >> ferða-annála >> ((we)blog). >> >> Þannig má lengi telja. >> >> Og til að *koma sjálfum sér á kortið* þá þurfa sveitarstjórnir helst að >> *vera með* í leiknum. >> >> *Samstarf við heimamenn:* >> Best er auðvitað að heimamaður taki sig til og kortleggi og skrái >> upplýsingar >> um sína heimahaga - Starfsmaður sveitastjórnar, (kennarar? verkefni í skóla >> sveitarfélags? (nýta OSM sem tæki við kennslu í landafræði, náttúrufræði ?)) >> Það hljóta að vera nördar eins og ég hér og þar um landið. Gamlir fræðingar, >> sem vantar tilgang með röltinu sínu. >> >> Við getum auðvitað aðstoðað, kennt, eða tekið við upplýsingum. >> >> *GIS:* >> Ég endurtek að fyrst og fremst eru ferðaþjónustutengdar upplýsingar í OSM >> gagnagrunninum - Ekki *nákvæmar* staðsetningar húsa, lagna o.þ.h eins og í >> stærri GIS kerfum. >> >> En ég myndi (verkfræðimenntaður) telja, að sem grófur GIS grunnur, þá sé OSM >> *fyllilega* nægilegt (Nú hoppa auðvitað GIS hreintrúarmenn hæð sína í öllum >> herklæðum). >> >> Fyrst og fremst er um að ræða hvaða tög er hægt að setja og tengja >> landfræði/staðsetningarupplýsingum (í báðar áttir), nákvæmum eða grófum. >> >> Og það eru ekki öll sveitarfélög sem hafa efni á að eignast, reka og >> viðhalda >> flottum GIS gagnagrunni, en gætu samt haft hag af (ég veit að þetta eru ekki >> nema nokkrar milljónir - en það eru bara ekki allir sem eiga nokkrar >> milljónir). >> >> Til dæmis - Tegund, staðsetning og yfirborð/ástand vega og skilta, >> lagnaleiðir >> (þar sem hitaveitu/vatns/ljósleiðara/raf-lögnin sem var lögð með jarðýtu- >> ripper - stefnan svo tekin á næsta bæ), rotþrær, brunnar, tengikassar, >> girðingar, skurðir, landnýting og skipulag, eru dæmi um upplýsingar sem >> krefjast ekki millimetra nákvæmni. >> Gagnlegar upplýsingar fyrir skipulag verka og útboð á vegum sveitarfélags. >> Þá gætu íslensk sveitarfélög frekar tekið sig saman um að nota >> fyrirliggjandi >> OSM kortagrunn og leggja ofan á þær meira prívat upplýsingar, s.s. íbúaskrá, >> landamerki, fasteigna-nr... >> >> Það vantar semsagt svona My-OSM. >> >> *Breytileiki grunns:* >> Þar utan má nefna að landið okkar góða er alltaf að stækka um nokkra >> sentimetra á ári, þannig að eftir 50 ár eru mannvirki komin hálfan til einn >> meter frá upprunalegri staðsetningu :-) >> >> Jarðfræðingur, góður félagi - vildi hafa þetta allt upp á millimeter, hæð og >> halla Heklu og Kötlu, og allt annað eins! >> Ég skil það vel, og er honum alveg sammála í því tilviki (Sem er í raun >> tímaröð hreyfinga). >> >> Hann gat þó ekki sagt mér í fljótu bragði, hvort sumarkofinn minn væri á >> leið >> austur (Frá Seltjarnarnesi - Sem er GPS-nafli Íslands) - eða vestur, kannski >> bara mitt á milli, eða örlítið á leið norður! >> >> http://osm.org/go/e0c_ewLNv-- >> >> ================================================================ >> >> Semsagt, muna eftir að *hagnaður* sveitarfélags við að nota OSM er margur. >> >> Kveðja, >> Pjetur >> >> _______________________________________________ >> Talk-is mailing list >> [email protected] >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
