2012/9/27 Svavar Kjarrval <[email protected]>: Enn og aftur frábært framtak hjá þér að standa í þessum fundum til að fá gögn.
> „Fundurinn 27. september gekk vel og er mikill velvilji að afhenda gögn > án endurgjalds sem ekki er mikill áhugi á af hálfu þeirra sem kaupa > venjulega af Reykjavíkurborg. Það er mjög gott að þeir sýni áhuga á því að afhenda einhver gögn, en eitt sem ég er að spá í er hvort vilji sé fyrir því að afhenda gögn sem fólk er að kaupa en með einhverri handahófskenndri skekkju sem gerir þau ónothæf t.d. til byggingarframkvæmda, en ekki til þess að búa til kort þar sem 5-10 metra skekkja er ekkert svo mikið stórmál. Það kannski bara flækir málin núna, en þetta er eitthvað sem ágætt væri að hafa í huga í framtíðinni og í viðræðum við aðra aðila. _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
