Hæ. Mikið hefur gerst þessa vikuna þar sem ég setti meiri tíma í þetta en áður og það var liðinn hæfilegur tími síðan ég sendi erindið. Þeir sem vilja vita stöðu einstakra bæja og hreppa geta farið á Wiki síðu verkefnisins (https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Icelandic:Br%C3%A9f_til_sveitarstj%C3%B3rna).
Nokkrum málum lauk í vikunni: * Reykjanesbær sendi gögn 3. október sl. ( http://osm.is/gogn/Reykjanesb%C3%A6r/) * Grindavík sendi gögn 5. október sl. ( http://osm.is/gogn/Grindav%C3%ADk/) * Grundarfjörður sagðist vera áhugasamur um verkefnið en hefði ekki mannaflann til að útvega gögnin. Tel því máli lokið af minni hálfu. Til þess að opna gögnin sem við fengum þurfum við einhvern sem hefur aðgang að AutoCAD og/eða Microstation til þess að flytja þetta yfir í shapefile eða .osm file. Einhver sem býður sig fram til þess? Ekki lokið en merkir áfangar: * Reykjavík gaf okkur leyfi til að nýta Borgarvefsjána til að skrá hjá okkur einstefnur og hraðatakmarkanir, sbr. fyrra bréf mitt á talk-is. * Um 15. október ætti Reykjavík að hafa lokið eða vera á lokastigi þess að opna síðu þar sem borgin gefur út LUKR þekjurnar sem hún er ekki að selja. Gögnin væru opin öllum en ekki eingöngu OSM. Með kveðju, Svavar Kjarrval
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
