Stórfínt! Ég skal skoða miðlínur stíga við tækifæri og bera saman við útgáfuna sem ég færði inn í gagnagunninn um árið.
Þetta er heilmikið af gögnum og það verður klárlega að halda utan um þetta á wiki. kv. Björgvin 2012/10/17 Svavar Kjarrval <[email protected]>: > Hæ. > > Ýmislegt hefur gerst síðan 8. október þrátt fyrir að eitthvað hefur > hægst á vegna anna hjá mér. Því hef ég ekki getað ýtt eins mikið við > málunum og áður. Ef þið viljið vita betur um stöðu ákveðins > sveitarfélags er hana að finna á > https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Icelandic:Bréf_til_sveitarstjórna . > Reyni að bæta upp aðgerðaleysið á næstu dögum en við sjáum til hvernig fer. > > Sbr. ósk Ævars reyndi ég að biðja um að fá gögnin á .dxf eða .shp en það > fellur ekki vel í þá sem ég bað um gögnin hjá, sérstaklega þar sem þeir > telja sig þurfa að fara í ákveðna vinnu til þess að gera það. Stundum er > um að ræða fyrirtæki eða einstaklinga sem telja sig hafa nóg annað að > gera og eiga mjög erfitt með að veita þá vinnu frítt. Því taldi ég það > betra að biðja bara um upprunalegu skrárnar og við reynum að umbreyta > sjálfir. Ég þarf að reyna að „selja það“ að beiðnin sé fljótafgreidd og > einföld í framkvæmd; Umbreytingaróskir af þessu tagi eru alls ekki að > hjálpa til. > > Málum lokið: > * Reykjavík, með opnun vefhluta á > http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3546/5704_view-5809/. > Setti gögnin á http://osm.is/gogn/ en einnig hægt að ná í þau beint af > vef þeirra. Netfangið [email protected] var ekki sett upp þegar ég tilkynnti > um afritun þeirra af minni hálfu. > * Fjarðabyggð, með afhendingu gagna. Setti gögnin á http://osm.is/gogn/ > > Málum næstum lokið: > * Akureyri sendi inn gagnapakka með loforði um seinni hluta síðar. Setti > gögnin á http://osm.is/gogn/ > * Skeiða- og Gnúpverjahreppur nefndi að við mættum nota það sem við > fyndum á vef þeirra. Er samt að athuga stöðuna hjá skipulags- og > byggingafulltrúaembætti uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps. Að sögn > þeirra eru þeir nýlega byrjaðir að setja upp sinn eiginn grunn sem er > fátæklegur þessa stundina. > > Ég vona að þið hellið ykkur í gögnin til að setja þau inn. Þó væri betra > ef þið létuð vita hvað þið eruð að taka svo það séu ekki tveir að taka > sömu gögnin á sama tíma, sérstaklega í tilfelli gagnanna frá Reykjavík. > > - Svavar Kjarrval > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is > _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
