Vegna óveðursins verður POI söfnuninni frestað þar til 17. nóvember, gefið að það sé göngufært þá.
- Svavar Kjarrval On 29/10/12 22:07, Svavar Kjarrval wrote: > Hæ. > > Ég ræddi við fólkið í Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, um daginn og > fékk samþykki þeirra til að redda upplýsingum um POIs í þeirra nafni. > Þetta er ekki formlegt samstarf milli OSM og þeirra. En þar sem söfnunin > gagnast OSM sérstaklega, þá datt mér í hug að redda sjálfboðaliðum > héðan. Söfnunin er alfarið á mína ábyrgð og þeirra sem vilja deila henni > með mér. Samkomulagið snýst eingöngu um að geta sagt að söfnunin sé á > vegum Sjálfsbjargar og síðan fæ ég netfang til afnota hjá þeim til að > senda út tölvupósta í tengslum við hana. Það er auðveldara að fá > upplýsingar ef hægt er að tengja þekkt samtök við slíkar beiðnir. Síðan > er auðveldara að kynna söfnunina sem hjálparverkefni fyrir fatlaða > heldur en söfnun gagna fyrir OSM. > > Téð verkefni snýst um það að redda POIs og upplýsingum um þá fyrir > OpenStreetMap og þær upplýsingar munu í framhaldinu rata inn á > Wheelmap.org. Notendur Wheelmap, sem eru að mestu hreyfihamlaðir > einstaklinga, geta þá á auðveldari hátt en nú merkt hjólastólaaðgengi > hjá fyrirtækjum. Þær upplýsingar rata síðan inn á OSM grunninn þar sem > gagnaskiptin eru tvíátta. Ef staðurinn er ekki inn á Wheelmap þarf > viðkomandi einstaklingur að setja hann inn sjálfur en það getur verið > nokkuð erfitt fyrir hreyfihamlaðan einstakling. Hann gæti þá frekar > valið að sleppa því að setja inn þær upplýsingar ef hann getur ekki gert > það án mikils erfiðis. > > Fyrsta skrefið væri að gera nokkurn veginn það sem ég gerði í > Hafnarfirði, s.s. að ganga um með síma og taka myndir af upplýsingum. > Myndirnar eru taggaðar með GPS staðsetningu svo augljóst er hvar þær > voru teknar. Með þær að vopni er hægt að setja inn POIs á OSM ásamt þeim > upplýsingum sem eru utan á byggingunum. Prufusvæðið fyrir þetta ákveðna > verkefni er Laugavegurinn frá Hlemmi og að Lækjargötu; Þá þarf ég > sjálfboðaliða til að taka myndir hinu megin við götuna. Mig langar ekki > að vera stöðugt á ferðinni yfir götuna og því þætti mér betra ef einhver > annar væri með í þessu. > > Eftir þessa upplýsingaöflun reyni ég að púsla þessum upplýsingum saman > og setja þau öll inn á réttan stað í OSM ásamt öðrum upplýsingum sem > náðust myndir af. Þá kemur að hluta Sjálfsbjargar en ég fæ afnot af > netfangi undir þeirra léni til að senda út tölvupósta til allra þessara > fyrirtækja (þar sem netfang liggur fyrir) og biðja þau um að staðfesta > upplýsingarnar og bæta við þeim upplýsingum sem á vantar. Ef engin > rafræn leið er í boði fá þau fyrirtæki heimsókn frá okkur til að gera > þetta á pappír. > > Þriðji parturinn, eftir að allt hitt er búið, eða að mestu, er að taka > létta ferð um svæðið og merkja þá staði með rauðu sem augljósast er að > vantar aðgengið. Þá er svæðið búið og hægt að fara yfir á það næsta. > > Hver vill aðstoða mig með þetta? Mig langar að stefna á að hefja > ljósmyndunarpartinn næsta laugardag eða sunnudag. Áætla lauslega að > ljósmyndunarhlutinn gæti tekið um 2 klst. ef ég fæ einn sjálfboðaliða. > Hver hefur tíma þá til að hjálpa mér? > > Með kveðju, > Svavar Kjarrval
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
