Það er í sjálfu sér ekki vandamál að á sé í mörgum hlutum. Lausnin í þeim tilfellum (sem er nauðsynleg fyrir mjög langar ár; hámarksfjöldi hnúta í leið á OSM er 2000) er að búa til vensl, sjá til dæmis venslin fyrir Þjórsá (https://www.openstreetmap.org/relation/6074187)
Ég held líka að mismunur á því hvar áin er og hvar mörk sveitarfélaganna eru hjá LMÍ séu frekar afleiðingar af ónákvæmni, eða af því að áin færist hægt og bítandi með tímanum. Í þeim tilfellum er líklegra en ekki að mörkin séu skilgreind út frá raunverulegri staðsetningu árinnar; mörk sveitarfélaga eru venjulega skilgreind út frá slíkum kennileitum frekar heldur en út frá nákvæmum hnitum.
_______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is