Góðan dag

Hliðskjálf - félag um opin og frjáls landupplýsingagögn, kennitala 5411130880, 
var stofnað 2013 til að stuðla að frjálsum landupplýsingagögnum á Íslandi.

Boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 22. maí 2025 í Bókasafni Kópavogs, í 
Huldustofu á 3. hæð í Hamraborg 6a, beint við stoppistöð Strætó, þar sem Ásinn, 
Tvisturinn og margar aðrar leiðir stoppa. Fundur hefst kl 16:00 og þarf að vera 
lokið 18:00 þegar safninu er lokað. Boðið verður upp á fjarfundartengil.

Félagið varð fyrsti skráði Local Chapter hjá OpenStreetMap Foundation 12. 
janúar 2015 sem þýðir að það er fulltrúi OpenStreetMap á Íslandi, eða eins og 
segir "country-level or region-level not-for-profit legal entities representing 
the area's OSM mappers and OSM data when dealing with local government, 
business, and media."

Við höfum verið í samstarfi með ytri aðilum til að bæta gögn á Íslandi, hvort 
sem það er með ja.is sem opnaði á 360° myndir sínar fyrir kortlagningu í OSM, 
með Apple Maps sem flutti inn gögn úr Staðfangaskrá eða þá nú, nýjasta 
verkefnið sem er samgöngunet á Íslandi.

Marco Pizzolato frá Náttúrufræðistofnun mun á aðalfundinum kynna verkefnið sem 
stofnunin er að vinna í sem er samgöngunet á Íslandi. Enginn einn opinber aðili 
hefur hingað til getað boðið upp á samfellt samgöngunet fyrir Ísland, 
sveitarfélögin eru með sína vegi og Vegagerðin með sína. OpenStreetMap hefur 
verið eini gagnaveitandinn sem hefur getað boðið upp á samfellt samgöngunet og 
það hafa ríkisaðilar sem aðrir nýtt sér.

Náttúrufræðistofnun er mikið í mun að vera í góðu samstarfi við OpenStreetMap 
og leitar því eftir samstarfi og hugmyndum um hvernig þetta getur átt sér stað. 
Hvernig gögn sem stofnunin fær frá opinberum aðilum geta skilað sér í 
OpenStreetMap og flæðið þarna á milli.

Við óskum eftir framboðum til stjórnar sem og hugmyndum að því hvernig þetta 
samstarf getur farið fram.

kveðja,
Jóhannes formaður
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to