föstudagur 26. janúar 2001 14:58. Þú skrifaðir: Sæll Tóti, > Ég var loksins að fá breiðbandsaðganginn sem ég minntist aðeins á um jólin. > Nú er ég með fína Linuxvél á góðri tengingu heima (1.4-1.5 Mbps) og í > gærkveldi náði ég í kde-i18n og kdesdk til að byrja að kíkja á þetta og > prófa KBabel. Þetta er ólíkt þægilegra. Til hamingju með það. Ég er með svona heima og það er ekkert líkt. > Hvað um það, mig langaði til að spyrja þig aðeins út í þetta. Notar þú > skriftu til að sækja allt og þýða í einum rykk eða ertu bara að þýða eitt > og eitt forrit sem þú ætlar að prófarkalesa eða íslenska. Ég vissi af > "kdebuild" skriftunni undir kdesdk og skoðaði hana aðeins í gær. Hún sækir > allt og þýðir (en hitar ekki kaffi í leiðinni) en síðan segja þeir á > anoncvs vefsíðunni að maður eigi ekki að sækja nema eitt module í einu. > Það gildir þá bara um nafnlausann aðgang (anonymous access) ? Það sem ég gerði var að sækja kde-i18n/templates og kde-i18n/is með öllum undirmöppum. Þetta er það sem við höfum áhuga á. Svo sótti ég líka innihald kde-i18n en ekki með undimöppum. Cvs skipanirnar eru þá eitthvað í líkingu við: cvs get kde-i18n/templates cvs get kde-i18n/is cvs get -l kde-i18n Þá á að vera hægt að keyra make -f Makefile.cvs, ./confgure og make til að smíða .mo skrárnar uppúr .po skránum og make install til að setja dótið inn. kde-i18n er *mjög* stór pakki og tekur langan tíma að sækja hann og mikla bandvídd að halda honum öllum við. Hinsvegar er templates + is þægilegt á stærð. Svo bendir þú bara kbabel á templates og is/messages möppurnar og þá sérðu ástandið í yfirlitsglugganum og getur opnað þær skrár sem þú hefur áhuga á. Svo er ferlið bara það að skrifa reglulega "cvs update" til að fá nýjustu útgáfur af öllu, gera einhverjar breytingar og gera svo "cvs commit -m 'athugasemd'". Helst á að vera sem styst milli update og commit, til að lágmarka líkurnar á árekstrum. Það er miklu betra að setja hálf-kláraða skrá inn en að liggja með hana, þó ekki nema vegna þess hvað þetta er auðvelt. Einn mjög mikilvægur punktur: EKKI LÁTA KBABEL BREYTA NAFNI SÍÐASTA ÞÝÐANDA OG DAGSETNINGU. Þetta virðist undarlegt, en ef við fylgjum þessari reglu ekki, þá koma cvs-merge árekstrar ef tveir breyta sömu skránni, sama hve langt er á milli breytinganna þeirra í skránni, því báðir myndu breyta hausnum. Þeir sem hafa sjálfir cvs aðgang fá nafnið sitt í cvsið þegar þeir gera "cvs commit" og þegar við setjum inn skrár frá öðrum, þá ættum við að setja nafnið þeirra í athugasemdina "cvs commit -m 'nafn þess sem þýddi'". -- Logi Ragnarsson - [EMAIL PROTECTED] Some day we all shall be out of scope
