Konan kom heim í helgarfrí í dag þannig að það voru bara litlar uppfærslur 
í kvöld ;-)

filetypes.po
kcmbell.po
kcmfonts.po
kcmstyle.po
kcmnotify.po
kcmlayout.po
kcmkurifilt.po
kcmkonq.po

Þá eru nákvæmlega 10 eftir í kdebase.  Ef einhver ætlar í þær á morgun, látið 
mig þá vita því ég verð sennilega að þýða einhverntíman milli 5 og 11 e.h. að 
ykkar tíma.

Fyrir utan loðna og óþýdda strengi þá hef ég líka samhæft nokkra sem voru 
mismunandi þýddir milli forrita.  Það er býsna þægilegt að nota 
KBabel-smíðaðan orðalista til að sjá hversu samhæfðir sjálfum okkur við erum 
í þýðingum.  Auðvitað væri enn betra ef hægt væri að smella á skrárnar í 
"Search" glugganum í hægra horninu og geta þannig farið beint í hinar 
þýðingarnar og samhæft allt í einum grænum, en sá möguleiki kemur bara síðar. 
(eftir að Matthias Kiefer les póstinn frá mér)

Kveðja,

Tóti.

Reply via email to