Svona, svona, strákar, þetta er bara það sem við má búast.
Ég sá ekki þennan þátt (horfi ekki á sjónvarp á morgnana), en
Bjarni Áka er víst ennþá framkvæmdastjóri. Hann á það til svo sem
að beita ýmsum meðölum og hefur örugglega ekki líkað þetta illa.
Kannski Makkarnir hafi meiri ástæðu en Billi að óttast Linux?
Og þó, varla meðan þeir hafa slíka yfirburði í grafíska geiranum
að prentiðnaðurinn lítur ekki við öðru.
Ég tel að ekki sé nein skynsemi í því að punda á ACO menn. Það er
miklu skynsamlegra að vekja athygli Stöðvar2 manna og annarra
fjölmiðla á Linux. Ráðstefnan 15 mars er kjörið tækifæri til að
leiðrétta þá.
Er einhver búinn að fá verð? Hvað ætla margir Vinix og KDE menn
(karlar OG konur)?
Ég hef stundum sent upplýsingar um Linux á ýmsa alþingismenn, sem
ég kannast við. Ef þið hafið einhver tengsl þá er um að gera að
nota þau líka. Þetta eru mennirnir sem eiga að semja eða að
minnsta kosti fjalla um lögin. Það er um að gera að undirbúa þá
rétt. :-)
Kærar kveðjur,
Böðvar Björgvinsson.
"Spörri" wrote:
>
> -----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
> Hash: SHA1
>
> Ég vissi ekki að Óli Hand (Ólafur William Hand [EMAIL PROTECTED]) væri
> framkvæmdastjórinn hjá þeim hélt að hann væri bara einn einn illa
> upplýstur sölumaður :)
>
> En svo það sé á hreinu þá er hann sölumaður hjá Aco og þetta viðtal
> var að sjálfsögðu illa dulbúin auglýsing fyrir MacOS og þýðinguna á
> því og í leiðinni ágætis rasskellur á framtaksleysið á áframhaldandi
> þýðingu á Windows (reynið bara að uppfæra í IE55 á
> windowsupdate.microsoft.com).
>
> Hann talaði m.a. um skóla út á landi sem eru svo ánægðir að hafa
> allan hugbúnað tölvunnar á íslensku og þann kost að þurfa ekki að
> verja stórfé í að kaupa óþýddan skrifstofuvöndul þegar íslenskaður
> hugbúnaður fylgir frítt með.
>
> Annars ætti að vera hægt að fá viðtalið á spólu hjá s2 ef einhver
> hefur áhuga
>
> Svo það væri kannski ráð að halda áfram að spila á nískupokataugarnar
> og finna einhverja sem eru tilbúinir til að sýna þjóðinni íslenskt
> notendaviðmót sem kostar ekkert og keyrir á núverandi vélbúnaði
> skólanna og geta gert það án þess að týna sér í umræðum um eitthvað
> UX og leyfismál sem Nonna notenda stendur alveg á sama um.
>
> Kveðja
> Spörri
>