mánudagur 16. apríl 2001 22:15, Gudmundur Erlingsson skrifaði:
> Ætli Emacs komist ekki næst þessu. Ef það er til eitthvað fullkomnara fyrir
> linux/unix þarf örugglega að borga fullt fyrir það.
Amm... kanski ég kíki á það á eftir.
> > Næsta þrep er að nota XLS til að breyta þessum XML skrám í HTML til
> > birtingar á vefnum. Mér sýnist cocoon frá Apache hópnum einmitt vera
> > græjan til þess og ef ég sef mjög lítið í nótt verður það komið upp
> > einhverstaðar (líklega á ferðavélinni minni) fyrir morgun.
>
> Einhvern tímann var ég að skoða svona græjur, cocoon lýtur vel út. Það var
> líka önnur sem leit ekki síður vel út sem heitir AxKit, opin source að
> sjálfsögðu og gerð fyrir Apache. Kosturinn við AxKit er að þú getur notað
> XSL en líka þeirra eigið skriftumál, sem er einfaldlega Perl með
> smáviðbótum. Það getur haft ýmsa kosti í för með sér, t.d. er þónokkuð
> auðveldara að meðhöndla regular expressions í Perl en XSL. Ef þú vilt kíkja
> á það: www.axkit.org.
Ég er (svotil) búinn að skrifa XSL vörpunina til að birta þetta, en ég held
að allavega í fyrstu borgi sig að byggja statískar html síður uppúr xmlinu
þegar xmlið er uppfært.
Mig vantar reyndar eitt í XSLið. Það væri auðvelt í perl, en mig vantar að
breyta öllum íslenskum stöfum í samsvarandi ascii stafi, þeas henda
broddstöfum og breyta þ,ð í th,d. Kann það einhver? Annars er það vætnanlega
bara hálftíma lestur :-)
Núna ætla ég að fara í það að láta byggja þetta dót sjálfkrafa uppúr CVSinu
og aðeins að lagfæra og bæta við DTD skilgreininguna. Þá verpur eiginlega
bara hægt að opna dótið.
--
Logi Ragnarsson - [EMAIL PROTECTED]
Some day we all shall be out of scope