Allt í lagi að bögga mig aðeins. Bara gaman að aðstoða þig í gang. :)
Ég held ég geti fullyrt að það er engin annar að vinna með Digikam, svo þú getur bara gert sem þú vilt þar. (verður flott að fá þetta góða forrit íslenskað). (Endurtek aðeins hér það sem ég skrifaði til þín í bréfi áðan um skjölin...) Er mjög lofandi ef þú byrjar á skjölunum. Eina vandamálið með skjalaþýðingar í dag (burtséð frá að mörg þeirra eru mjög úreld) er að þú verður að hafa allt skjalið 100% þýtt áður en það er notanlegt. En nú nýlega var umræða á [EMAIL PROTECTED] póstlistanum um að gera breytingar sem gera kleyft að nota einnig skjöl sem eru bara þýdd að hluta til. Verður spennandi að sjá hvað gerist þar. Með KDE 4, þá er engin fastur útgáfudagur ákveðinn og það koma til með að verða eithvað fleiri 3.5.x útgáfur (KDE 3.5.5 er með áætlaðan útgáfudag 10. október 2006, sjá http://developer.kde.org/development-versions/kde-3.5-release-plan.html) Ég kem til með að afrita þýðingarnar yfir í KDE 4 greinina þegar það verður nauðsynlegt. Kveðja, Arnar Þann Laugardagur 7. október 2006 16:37 skrifaðir þú: > Sælir > > Ég er grænn og ferskur KDE þýðandi og hef verið að bögga > Arnar Leósson með allskyns spurningum upp á síðkastið. > > Þýddi að mestu Gwenview myndskoðarann og er sú þýðing komin > inn í stable; er að vinna í DigiKam og tilheyrandi viðbótum > (sem eru margar sameiginlegar með GV). > > Telst til að 20% af extragear-graphics sé orðið skikkanlega > þýtt hjá mér; langstærsti pakkinn sem er eftir er digiKam > forritið sjálft. Er byrjaður á því. > > Eru einhverjir fleiri að vinna í þessum pökkum ? > > Nú er það svo að til að þýðingarnar skili sér vel, þá þarf > oft að ráðfæra sig við hjálparskjölin (docs) um viðkomandi > efni. Mér finnst orðið jafnaðkallandi að þýða helst jafnóðum > þau skjöl líka, þannig er líklegra að gott samræmi haldist. > > Þetta tefur náttúrulega gríðarlega framvinduna að vinna í > docs meðfram forritunum, reyni samt að fara einhvern > skynsamlegan meðalveg. > > Hitt er svo aftur spurningin hvort ekki þurfi eitthvað að > miða sig við útgáfudagsetningu KDE 4 ? > > > Bestu kveðjur úr sveitinni: > > Sveinn H. Sverrisson > ¤ø,¸¸,ø¤º°`°º¤ø,¸¸,ø¤º°`°º¤ø,¸¸,ø¤ > [EMAIL PROTECTED] - 462 5972 > Fell - Stórholt 2a, 603 Glerárþorpi > ¤ø,¸¸,ø¤º°`°º¤ø,¸¸,ø¤º°`°º¤ø,¸¸,ø¤ > > > - 8< - - - Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/ Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn. Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta. - - - >8 -
