Ein spurning (ef einhver á listanum veit):

hvaða skrá þarf að breyta til að fá inn nýja staðsetningu
inn í tímabeltin ?
Það er þegar maður hægrismellir á klukkuna í KDE, velur
"stilla tímabelti" og síðan -Atlantshaf-Reykjavík.
Ég sé að í "/usr/share/zoneinfo" og þar undir er fullt af
binary skrám sem ég veit ekki alveg hvernig ætti að eiga
við. Þar er líka textaskráin "zone.tab" sem er sett upp á
mjög líklegan hátt, en er hinsvegar á ensku.

Þetta er ekkert krítísk spurning en samt á ég bágt með að
segjast vera staðsettur í Reykjavík þegar ég á heima í
Glerárþorpi (og ALLS EKKI á Akureyri - það er annað
fótboltalið...).
Ég held að nokkur forrit (KDE ofl) noti þessar
staðsetningarupplýsingar, það væri galli í forriti einsog
segjum Kstars. Er búinn að leita í .po þýðingarskrám og finn
ekki neitt sennilegt.
Ef einhver veit um hvaða skrá er að ræða væri gott að fá
ábendingu.

Takktakk

Sveinn í Felli




- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -

Reply via email to