Ágæti viðtakandi.
Nú um nokkurra ára skeið hefur hópur áhugamanna unnið í því að búa til ókeypis kort af Jörðinni, þar með talið Íslandi. Þetta kort er öllum aðgengilegt á vefnum á www.openstreetmap.org (Seltjarnarnes má sjá hér: http://www.openstreetmap.org/?lat=64.1529&lon=-21.9952&zoom=14&layers=B000FTF), en einnig er hægt að hlaða kortagrunninum niður að hluta til eða í heilu lagi til þeirrar notkunar sem hverjum hentar. Margir nota þessi gögn t.d. til að búa til kort til notkunar í gps tækjum. Kortlagningin á Íslandi hefur hingað til að mestu farið fram með því að beinar mælingar hafa verið gerðar með gps tækjum og þeim síðar bætt í gagnagrunnin. Þetta er seinleg vinna og því sem næst gagnslaus við annað en kortlagningu á götum, göngu- og hjólastígum og þessháttar. Nær ómögulegt er til dæmis að kortleggja strandlínu lands og vatna með þessum hætti. Við svoleiðis kortlagningu eru yfirleitt notaðar loftmyndir, og er slíkt líka raunin í Openstreetmap. Gerður var samningur við Yahoo! um afnot af loftmyndunum þeirra og hefur þetta víðast hvar verið mikil hjálp við kortlagningu (sjá t.d. Stadsgraven í Kaupmannahöfn: http://maps.yahoo.com/#mvt=h&lat=55.671799&lon=12.601297&zoom=18), en því miður er það ekki svo hér því engar nákvæmar loftmyndir af Íslandi eru aðgengilegar (sjá Seltjarnarnes hér: http://maps.yahoo.com/#mvt=s&lat=64.151813&lon=-22.002375&zoom=14). Seltjarnarnes var fyrst sveitarfélag á Íslandi til að fá allar sínar götur á Openstreetmap kortið, og væri það því vel við hæfi að það yrði líka fyrst til að fá t.d. allar byggingar á kortið. Til þess að svo megi verða þurfum við þó aðgang að betri gögnum en nú er, og óska ég því eftir því að Seltjarnarnesbær veiti Openstreetmap hópnum aðgang að kortagögnum sínum til innsetningar í Openstreetmap kortagrunninn. Á Lýsigagnavefnum (http://landlysing.lmi.is/data/ig-o107.htm) er tilgreindur listi yfir kortagögn og loftmyndir í eigu Seltjarnarnesbæjar, þessi kort og loftmyndir eru svo aðgengilegar í Landupplýsingakerfi Seltjarnarness á http://hekla.snertill.is/seltjarnarnes_public/web/. Til að þessi gögn geti nýst okkur þar skýrt leifi rétthafa (Seltjarnarnessbæjar) að liggja fyrir. Kortagrunnur Openstreetmap er gefin út undir opnu hugbúnaðarleifi (cc-by-sa 2.0 sjá hér: http://creativecommons.org/licenses/by-sa/2.0/) og gildir það um allar viðbætur í grunninn líka. Með öðrum orðum, yrðu öll þau gögn sem þið gæfuð okkur leifi til að nota gefin út undir fyrrgreindu leifi sem hluti af Openstreetmap kortagrunninum. Með bestu kveðjum og von um jákvæð viðbrögð, Þórir Már Jónsson _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
