2010/1/15 Svavar Kjarrval <[email protected]>: > Var að vinna við að breyta Flugvallarveginum og Hlíðarfæti í 101 > Reykjavík og tók eftir rosalegri skekkju í þeim gögnum sem voru áður. > Samkvæmt OFP liggur Hlíðarfótur í gegnum staðinn þar sem Háskólinn í > Reykjavík er núna. Í framhaldinu ákvað ég að eyða út viðeigandi OFP > hnútum og skipti út fyrir þá sem ég vann út frá gögnum sem ég safnaði > fyrir þrem dögum. Veit ekki hvort þetta hafi verið vegna þess að > vegurinn hafi verið þarna en ekki lengur eða það sé vegna rangrar > ályktunar á gögnum.
Áður en framkvæmdir við háskólann hófust var vegurinn þarna þar sem ofp vegurinn er enn, þ.e. í gegnum mitt háskólasvæðið. Ég breytti þessu á OSM fyrir 1-2 árum þegar þessu var breytt en OFP var greinilega með gömul gögn. > Tók einnig eftir skekkjum þegar ég hlóð inn gögnum sem ég safnaði í gær > í Hafnarfirðinum. Þótt OSM gögnin voru ekki nákvæmlega eins og þau sem > ég safnaði voru þau samt sem áður gróflega séð nokkurn veginn eins á > meðan OFP gögnin innihéldu miklar skekkjur á flestum stöðum. Von er á > gögnunum á næstu dögum og um leið eyðingu viðeigandi OFP hnúta. Ahm, þetta er misjafnt eftir svæðum og má búast við því að þurfi að eyða miklu sumstaðar en ekki annarstaðar. > Vildi bara láta vita af þessu svo það sé ekki lagt of mikið traust á OFP > hnútana. Sammála þar, en þessi gögn eru misjöfn í gæðum rétt eins og okkar. Ég er búinn að rekast á nokkra staði þar sem OFP gögnin eru langt innan GPS skekkjumarka frá okkar gögnum (5-10 metra) og á sumum stöðum rekja þau betur þjóðvegi en okkar jafnvel þótt stuðst sé við okkar egin ferla (vegirnir okkar eru þá grófari með færri punktum). Ég tók líka eftir því að við Ólafsfjörð héldu OFP gögnin áfrám veg sem ég hafði sett in af hluta til 50cm frá mínum gögnum. _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
