Hér er smá uppfærsla á LUKR + OpenStreetMap málinu, ég sendi þetta á OpenStreetMap póstlistann fyrir Ísland, Pálma hjá Reykjavík og á nokkra aðra:
Björgvin Ragnarsson tók við diski með LUKR gögnum í dag sem við erum með leyfi til að nota í OpenStreetMap. Það var líka ritað um þetta í dagbók borgarstjóra: http://www.facebook.com/dagbok.borgarstjora (kann einhver að tengja *bara* í viðkomandi þráð þarna á Facebook?) Hérna eru gögnin eins og þau komu frá borginni: http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18 Og hérna er conversion á þeim í WGS84 sem *virkaði ekki*: http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18/raw/convert/gonguleidir_LUKR_170910-wgs84.osm Ég breytti hnitunum úr ISNET93 í WGS84. En þetta er líkast til í sérhnitakerfi sem LUKR notar, ég veit ekki hvernig á að breyta því almennilega, en það fylgir með gonguleidir_LUKR_170910.prj skrá með vörpuninni. Það þarf bara að tala rétt við gdal/proj4 til að fá þetta í gegn, aðstoð með það velkomin. En það er hægt að skoða þessa OSM skrá í t.d. JOSM og sjá circa hvernig þetta lítur út. Þessi gögn eru við fyrstu skoðun bara stígar og gangstéttir í Reykjavík, s.s. engir bílvegir, byggingar og annað. Ég veit ekki hvernig þessar umræður fóru hjá borginni/LUKR með það hvaða hluta af þessum gögnum við getum fengið (bætti Pálma hjá Reykjavík á CC), s.s. hvort það sé um það að ræða að við fáum stærri hluta af grunninum. Það væri mun betra fyrir almenna notkun á LUKR gögnum bæði fyrir okkur og aðra ef þetta væri stærri hluti af grunninum. Það er svoldið vesen að sameina OSM og LUKR gögnin hjá okkur ef þetta eru bara gangstéttir, því við þurfum þá að klæða þá utan um vegi sem eru þegar til. Svo þarf líka að spá í hvernig við ætlum að uppfæra þessi gögn ef og þegar þau fara inn. Það væri leiðinlegt að setja þetta inn á þann máta að við endum með úrelt gögn eftir 1 ár. Svo er annað, ég fæ ekki betur séð en að skv. þessari yfirlýsingu sem var skrifað undir: http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18/blob/convert/Scan.JPG Sé ósamhæf frjálsum leyfum eins og OpenStreetMap er undir, því þarna er nefnt að niðurfelling gjalds sé bundið við OpenStreetMap verkefnið. En þar sem OpenStreetMap er að búa til frjálsan grunn sem hver sem er má nota í tengslum við hvaða verkefni sem er. Svo er líka spurning hvort með ODbL leyfinu sem OpenStreetMap er að fara nota að það sé ekki hægt að koma því þannig fyrir að LUKR og aðrir geti svo tekið þessi gögn aftur út úr OSM eftir einhverjar breytingar og notað þau. Einfaldasta lausnin á öllum þessum leyfismálum væri að fá einhvern sem hefur umboð til að gefa okkur gögnin til að skrá sig á openstreetmap.org, samþykkja "contributor terms" skilmálana, og hlaða inn gögnum. Þessir skilmálar sjást hérna: http://www.osmfoundation.org/wiki/License/Contributor_Terms Og voru nýlega skrifaðir af lögfræðingum á vegum OSM einmitt fyrir svona aðstæður. Svona í lokin: Það er margt sem þarf að gera og laga, og þá kannski helst samkiptin á milli okkar allra. Allt-í-allt er þetta alveg frábært framtak hjá Reykjavíkurborg og LUKR sem ég vona að heppnist sem best. Vonandi náum við að koma þessu öllu í gegn þannig að allir málsaðilar hagnist á þessu, og að þetta verði fordæmisgefandi og ryðji veginn fyrir opin gögn á Íslandi. _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
