Sæll Stefán. Í framhaldi af spjallinu okkar í gær sendi ég hér formlega beiðni um kortagögn fyrir OpenStreetMap. Gögnin sem við óskum eftir eru þau sem eru aðgengileg á heimasíðu Snertils ( http://www.infrapath.is/mapguide/fusion/templates/mapguide/Seltjarnarnes/). Þessum gögnum yrði bætt í OpenStreetMap gagnagrunninn og yrðu þar með aðgengileg öllum sem hann vilja nota.
OpenStreetMap grunnurinn er gefin út undir opnu og frjálsu hugbúnaðar/gagna leyfi sem gerir hverjum sem er kleift að nýta hann í hvaða tilgangi sem er. Nánar má lesa um leyfis mál á þessari síðu og undirsíðum hennar: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Licence Á Snertils síðunni er hægt að skoða þessi gögn en ekki virðist vera hægt að hlaða þeim niður, þyrftum við því að geta nálgast þessi gögn með einhverjum öðrum leiðum ef þessu verður. Kort teiknað upp úr þessum kortagrunni má sjá á heimasíðu OpenStreetMap: http://www.openstreetmap.org og til gamans þá er hér hlekkur beint á Seltjarnarnes: http://www.openstreetmap.org/index.html?mlat=64.1545&mlon=-21.995&zoom=14 Ég sendi þennan póst líka á íslenska OpenStreetMap póstlistann ( [email protected]), og best væri ef öll frekari tölvupóstsamskipti færu í gegnum hann. Annars er hægt að ná í mig persónulega á [email protected] eða í síma 698 6314. Bestu kveðjur, Þórir Már
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
