Ég átti erindi út á bæjarskrifstofuna hérna á Nesinu og ákvað að athuga með þetta í leiðinni.
Stefán er umsjónarmaður kortagagna hjá bænum, en hann gat ekki svarað því hvernig leyfismálin stæðu og bað mig því um að senda sér tölvupóst með formlegri beiðni svo hann gæti tekið þetta upp fyrir bæjarstjórn. Hann sagðist persónulega ekki sjá neitt þessu til fyrirstöðu, þannig að ég er hóflega bjartsýnn á að þetta gangi. Kv. Þórir Már 2010/11/16 Svavar Kjarrval <[email protected]> > Gott hjá þér, Þórir. > > Það minnir mig á að ég fór í dag á bæjarskrifstofuna í Garðabæ en gat því > miður ekki fengið hnitagögn. Hins vegar er möguleiki að ég fái PDF með > gögnum sem gætu gagnast fyrir húsnúmer og svoleiðis. Sú sem ég var í > sambandi við var að fara út og ætlar að kíkja á þetta á morgun. Hugmyndin > var að ég fengi þetta á geisladisk en sjáum til hvort einhver skilyrði verði > fyrir notkun þeirra. > > Hins vegar var mér bent á fyrirtækin Efla og Hnit upp á að fá hnitin sjálf. > Hef enn ekki náð sambandi við neinn þar sem getur veitt mér bjargfastar > upplýsingar um kostnað og leyfismál. Ef einhver vill taka það að sér, væri > það frábært. > > Með kveðju / With regards, > Svavar Kjarrval ([email protected]) > s. 863-9900 > > > > On 16.11.2010 23:08, Thorir Jonsson wrote: > >> Sæll Stefán. >> >> Í framhaldi af spjallinu okkar í gær sendi ég hér formlega beiðni um >> kortagögn fyrir OpenStreetMap. Gögnin sem við óskum eftir eru þau sem eru >> aðgengileg á heimasíðu Snertils ( >> http://www.infrapath.is/mapguide/fusion/templates/mapguide/Seltjarnarnes/). >> Þessum gögnum yrði bætt í OpenStreetMap gagnagrunninn og yrðu þar með >> aðgengileg öllum sem hann vilja nota. >> >> OpenStreetMap grunnurinn er gefin út undir opnu og frjálsu >> hugbúnaðar/gagna leyfi sem gerir hverjum sem er kleift að nýta hann í hvaða >> tilgangi sem er. Nánar má lesa um leyfis mál á þessari síðu og undirsíðum >> hennar: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Licence >> >> Á Snertils síðunni er hægt að skoða þessi gögn en ekki virðist vera hægt >> að hlaða þeim niður, þyrftum við því að geta nálgast þessi gögn með >> einhverjum öðrum leiðum ef þessu verður. >> >> Kort teiknað upp úr þessum kortagrunni má sjá á heimasíðu OpenStreetMap: >> http://www.openstreetmap.org og til gamans þá er hér hlekkur beint á >> Seltjarnarnes: >> http://www.openstreetmap.org/index.html?mlat=64.1545&mlon=-21.995&zoom=14< >> http://www.openstreetmap.org/index.html?mlat=64.1545&mlon=-21.995&zoom=14 >> > >> >> Ég sendi þennan póst líka á íslenska OpenStreetMap póstlistann ( >> [email protected] <mailto:[email protected]>), og best >> væri ef öll frekari tölvupóstsamskipti færu í gegnum hann. Annars er hægt >> að ná í mig persónulega á [email protected] <mailto:[email protected]> >> eða í síma 698 6314. >> >> Bestu kveðjur, >> Þórir Már >> >> >> _______________________________________________ >> Talk-is mailing list >> [email protected] >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >> > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
