Takk fyrir þetta. Ákvað að prófa mig áfram og framkvæmdi slatta af breytingum. Leiðrétti mikið af vegum í Efra-Breiðholtinu og síðan aðalhluta Höfðabakka. Ég get haldið áfram í Efra-Breiðholtinu næsta kvöld ef enginn mótmælir en ég vara alla við að ég hef aldrei búið þar og er því ekki fullkunnugur staðarháttum. Væri annars ekki ágætt ef við hefðum hentugri umræðuvettvang til að deila með okkur verkum? Ég myndi leggja til etherpad.

En annars vildi ég forvitnast hversu ítarlegar merkingarnar ættu að vera. Ættu öll bílastæði við fjölbýlishús að vera merkt sem parking eða eingöngu nokkuð stór bílastæði? Væri frábært að vita hvað ég (og aðrir) ættum að miða við.

Ó, hvað það væri skemmtilegt að hafa líka stígagögnin frá LUKR! *hint* *hint*

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 30.11.2010 23:06, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
2010/11/30 Svavar Kjarrval<[email protected]>:
Þetta kemur ekki fram sem möguleiki í WMS og ég finn ekki neitt nánar um
þetta á openstreetmap wiki eða umræðunni. Hvernig fékkst þú þetta upp í
JOSM? Ég vil byrja! *spenntur*
Thetta er ekki opinberlega i JOSM vegna thessa:
http://lists.openstreetmap.org/pipermail/josm-dev/2010-November/005056.html

En thad er haegt ad nota  http://wms.latlon.org/, s.s. setja:

     http://wms.latlon.org/?layers=bing&;

Sem URL fyrir nyjan WMS layer i JOSM.

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to