Þetta er frábært. Ath. að loftmyndirnar eru nokkurra ára (kannski þriggja ára sýnist mér) svo það verður að hafa það í huga þegar teiknað er upp eftir þeim.

Og já Svavar, ég ætla að bera undir ykkur lokatillögu að vörpun á LUKR gögnunum um helgina.

Björgvin

Þann 1.12.2010 15:47 skrifaði Ævar Arnfjörð Bjarmason <[email protected]>:
2010/12/1 Svavar Kjarrval [email protected]>:

> Takk fyrir þetta. Ákvað að prófa mig áfram og framkvæmdi slatta af

> breytingum. Leiðrétti mikið af vegum í Efra-Breiðholtinu og síðan aðalhluta

> Höfðabakka. Ég get haldið áfram í Efra-Breiðholtinu næsta kvöld ef enginn

> mótmælir en ég vara alla við að ég hef aldrei búið þar og er því ekki

> fullkunnugur staðarháttum. Væri annars ekki ágætt ef við hefðum hentugri

> umræðuvettvang til að deila með okkur verkum? Ég myndi leggja til etherpad.



Fólk notar yfirleitt bara PNG mynd af kortinu þer sem er búið að krota

á það til að skipta því niður í svæði. Kannski gæti einhver framkvæmt

slíkt krot?



Ég legg til að við reynum að kortleggja miðbæinn sem best eftir þessum

myndum bara til að sjá hversu flott þetta getur verið, þ.e. svæðið á

meðfylgjandi mynd.



> En annars vildi ég forvitnast hversu ítarlegar merkingarnar ættu að vera.

> Ættu öll bílastæði við fjölbýlishús að vera merkt sem parking eða eingöngu

> nokkuð stór bílastæði? Væri frábært að vita hvað ég (og aðrir) ættum að miða

> við.



Við kortleggjum dót sem er "on the ground". Öll bílastæði eru það

hversu merkileg sem þau eru, en vissulega á að merkja stæði við

fjölbýlishús access=private eða álíka.



Þannig ef einhver nennir að kortleggja öll bílastæði í Reykjavík, líka

þau sem standa við heimahús væri það frábært.

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to