Hæ, nú þar sem bing kortin auðvelda okkur til muna að setja innn hús og húsnúmer númer inn í OSM langar mig að forvitnast um eftirfarandi atriði:
Geta helstu gps bíltæki birt útlínur húsa ásamt húsnúmerum? Eða er bara boðið uppá húsnúmera routing án auka grafíks eins og við þekkjum td. úr garmin kortunum? Annað, í sumum tækjum eru 3d módel af þekktum byggingum, geta osm kort boðið upp á þessháttar skraut ? Eitt enn, Getum við haft svona akreinavísa fyrir leiðsögutæki ? Þar sem td þeim sem ætla uppá bústaðaveg (Frá hvaða götu sem er.), er bent á að halda sér á ákveðinni akgrein. Semsagt, getum við ekki gert samkeppnishæf gps kort við íslenku garmin kortin hvað varðar ýmsa aukafídusa ? Kv. Kalli _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
